„Ég er bara svolítið sár“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 24. október 2026 12:23 Dagmar Ýr Stefánsdóttir er sveitarstjóri Múlaþings. Egill Aðalsteinsson Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fólk fengið fjörutíu prósent afslátt af fargjaldi en innviðaráðuneytið tilkynnti í gær að fyrirkomulaginu verði breytt frá og með áramótum. Afslátturinn verður bundinn við fasta krónutölu og munu íbúar á landsbyggðinni nú fá sjö þúsund króna afslátt af allt að sex flugferðum. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, gagnrýnir áformin og samráðsleysi. Hún hafi fyrst heyrt um málið í fjölmiðlum. „Þetta eru slæmar fréttir og eiginlega bara hálfgert áfall ef ég á að vera alveg hreinskilin. Við erum bara í þannig stöðu fyrir austan að við verðum að nýta innanlandsflugið til að sækja okkur grundvallarþjónustu til Reykjavíkur og oft þurfum við að stökkva í flug með stuttum fyrirvara.“ Hér má sjá verð á flugferðum frá Reykjavík til Egilsstaða.vísir/Skjáskot Flugferðirnar séu dýrari þegar fyrirvarinn er stuttur og á bókunarvef Icelandair má einmitt sjá að á næstu vikum kosta þær allt upp í sextíu þúsund krónur. Dagmar lýsir hinum nýja afslætti sem dropa í hafið. „Okkar barátta hefur frekar snúið að því að reyna að fá prósentutöluna hækkaða af því að flugið er bara svo dýrt. Mér finnst þetta sorgleg þróun og ekki í takti við þær væntingar sem við höfum til ríkisstjórnarinnar um það að reyna að byggja upp byggð í öllu landinu og draga úr þessu mikla höfuðborgarvægi.“ Kallar eftir samtali Í tilkynningu frá innviðaráðuneyti kom fram að kostnaður við loftbrú hafi farið fram úr fjárheimildum á síðustu árum. Um sex hundruð milljónir hafa árlega verið áætlaðar í verkefnið en kostnaðurinn nam í raun um sjö hundruð og fjörutíu milljónum króna í fyrra. Dagmar telur að þessu þurfi að mæta með öðrum hætti og kallar eftir samtali við ráðamenn. „Þetta er bara enn einn hluturinn sem er að bitna á landsbyggðinni. Við höfum mikið verið að tala um þessa landsbyggðarskatta sem er búið að vera að setja á og svo kemur þetta í ofanálag, þannig að ég er bara svolítið sár akkúrat núna,“ segir Dagmar.
Flug Múlaþing Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira