Föst krónutala í stað hlutfalls Atli Ísleifsson skrifar 23. október 2026 11:29 Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020. Vísir/Vilhelm Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef innviðaráðuneytisins. Þar segir að upphæðin verði sjö þúsund krónur fyrir hvern fluglegg eða fjórtán þúsund krónur fyrir ferð fram og til baka. „Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar muna einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum. Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu. Viðtökur voru góðar og ferðum með Loftbrú hefur fjölgað ár frá ári. Á síðustu árum hefur heildarkostnaður vegna Loftbrúar farið nokkuð fram úr áætlunum. Af þessum sökum ákváðu stjórnvöld að gera breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar í því skyni að nýta fjárveitingar ríkisins sem best,“ segir í tilkynningunni. Kostnaðurinn fyrirsjáanlegri Haft er eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra að þjónusta Loftbrúar hafi verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. „Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur. „Í nýju fyrirkomulagi getur afsláttur orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld en að sama skapi lægri eftir því sem fargjöldin hækka. Fólk getur þannig nýtt afsláttarkóða sína eins vel og kostur er. Að sama skapi dregur úr hvata að flugfargjöld hækki samhliða hækkandi niðurgreiðslu frá ríkinu með afsláttarkóðunum. Þannig getur þetta einnig haft góð áhrif til að draga úr verðbólgu,“ er haft eftir Eyjólfi. 600 milljónir króna Í tilkynningunni segir að um 600 milljónir króna hafi verið áætlaðar til Loftbrúar á ári síðastliðin ár og sú fjárheimild standi óbreytt. „Heildarkostnaður vegna verkefnisins hefur á hinn bóginn reynst meiri á árunum 2023-2025 en því var mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru heildarútgjöld Loftbrúar um 140 milljónum króna fram úr áætlunum. Alls eiga um 62 þúsund íbúar á landsbyggðinni kost á því að nýta sér Loftbrú. Á síðustu árum hafa verið um eða yfir 80 þúsund ferðir verið keyptar með afsláttarkóðum Loftbrúar. Meðalniðurgreiðsla á síðustu árum hefur verið frá sex til rúmlega níu þúsund krónur.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Byggðamál Neytendur Flug Akureyrarflugvöllur Egilsstaðaflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Samgöngumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira