Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. október 2026 10:56 Guðmundur Ingi opnaði sig um málið á Alþingi í gær. Vísir/Anton Brink Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður og fyrrverandi ráðherra lét fjarlæga blett af fæti sínum fyrir tæpum mánuði sem hann segir að hafi reynst vera krabbamein. Hann segist hafa þurft að bíða í rúmt ár til þess að komast í leit hjá húðlækni.
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfélagið allt sameinist í stuðningi og hluttekningu með fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra. „Nú er rétt tæpur mánuður síðan var tekinn blettur af fæti mínum sem reyndist vera krabbamein. Til þess að geta farið í þessa leit þurfti ég að bíða í rúmt ár. Mér skilst að þessi tími muni lengjast mikið. Ég var heppinn. Það sem reyndist vera hjá mér var krabbamein en í lottóinu þá vann ég vegna þess að þetta var staðbundið og hægt að taka það,“ segir Guðmundur Ingi. „Hvers vegna var það komið? Jú, út af sólbekkjum, segja þeir, og sólarljósinu. Ef fólk brennur á það á hættu að lenda í þessari stöðu en þá er líka hætta á að fá sortuæxli sem er enn þá alvarlega. Þess vegna segi ég að við verðum að sjá til þess að biðtími verði styttur þannig að fólk sem þarf á þjónustu að halda geti virkilega farið og fengið þjónustu og þurfi ekki að bíða í ár eða tvö eða þrjú ár.“ Á vef Krabbameinsfélagsins kemur fram að húðkrabbamein leggist einkum á húðsvæði sem verða fyrir mikilli útfjólublárri geislun frá sólinni eða ljósabekkjum. Sortuæxli er alvarlegasta gerð húðkrabbameina sem er auðvelt að lækna greinist það á byrjunarstigi en getur verið erfitt við að eiga nái það að dreifa sér. Þar segir að til húðkrabbameina teljist ýmsar gerðir krabbameina, en aðallega er um að ræða þrjár gerðir, flöguþekjukrabbamein (carcinoma squamocellulare), grunnfrumukrabbamein (carcinoma basocellulare) og sortuæxli (melanoma malignum).
Alþingi Krabbamein Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira