Upp­gjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Ellen Nystrom var frábær í kvöld með 31 stig og 14 fráköst fyrir Grindavík.
Ellen Nystrom var frábær í kvöld með 31 stig og 14 fráköst fyrir Grindavík. Vísir/Vilhelm

Grindavíkurkonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld með sannfærandi fjórtán stiga sigri á nágrönnum sínum úr Keflavík, 89-75.

Grindavík hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína en þetta var þriðja tap Keflavíkur í fyrstu fjórum umferðunum.

Grindavík vann fyrsta leikhlutann 31-21 og var komið ellefu stigum yfir í hálfleik. Grindavík hélt frumkvæðinu og forystunni út leikinn.

Ellen Nystrom var með 31 stig og 14 fráköst fyrir Grindavík og Farhiya Abdi bætti við 24 stigum. Abby Beeman var með 13 stoðsendingar og 8 stig.

Amaiquen Siciliano skoraði 24 stig fyrir Keflavík, Thelma Dís Ágústsdóttir var með 15 stig og Anna Lára Vignisdóttir skoraði 12 stig.

Leikurinn fór fjörlega af stað og setti Grindavík fyrstu fimm stigin á töfluna áður en Keflavík svaraði með næstu sex stigum. Það var jafnt með liðunum í upphafi en frábær nýting Grindavíkur fyrir aftan þriggja stiga línuna þar sem þær settu niður sjö af tíu tilraunum skilaði þeim í frábærri stöðu eftir fyrsta leikhluta 31-21.

Keflavík byrjaði annan leikhluta með krafti og saxaði á forskot Grindavíkur en áður en langt um leið var Grindavík farið að skjóta þær í kaf aftur.

Sóknarleikur Keflavíkur var ekki að ganga upp og virtust öll skot á köflum skrúfast upp úr körfunni. Arnór Daði tók leikhlé til þess að reyna stilla saman strengi hjá sínu liði.

Keflavík náði ágætis rispum en Grindavík fór inn í hálfleikinn með nokkuð örugga ellefu stiga forystu 50-39.

Mikil barátta einkenndi þriðja leikhlutann og mátti sjá þreytumerki byrja að myndast í liði Grindavíkur sem voru þunnskipaðar í kvöld. Keflavík fékk tækifæri til þess að refsa en skotin þeirra voru ekki að detta.

Grindavík setti nokkur stór skot undir lok leikhlutans sem skilaði því að þær fóru inn í fjórða leikhlutann með tólf stiga forystu 68-56.

Grindavík gaf Keflavík aldrei færi á að nálgast þær í fjórða leikhluta og náðu þær mest tuttugu stiga forskoti á kafla.

Þrátt fyrir fína rispu Keflavíkur þegar leið á leikhlutann nálguðust þær Grindavík aldrei að neinu viti og Grindavík fór með sannfærandi og sanngjarnan fjórtán stiga sigur 89-75.

Atvik leiksins

Grindavík kæfði alla vona Keflavíkur á að fá eitthvað úr þessum leik strax í upphafi fjórða leikhluta þegar þær náðu tuttugu stiga forystu.

Stjörnur og skúrkar

Ellen Nyström var atkvæðamest í liði Grindavíkur með tvöfalda tvennu en hún setti 31 stig og reif niður 15 fráköst að auki.

Farhiya Abdi setti þá 24 stig og var illviðráðanleg oft á tíðum inni í teignum.

Hjá Keflavík var Amaiquen Siciliano langbest og endaði með 24 stig. Hún var burðarás Keflavíkur í kvöld en hefði þurft aðeins meiri aðstoð sóknarlega.

Dómararnir

Davíð Kristján, Birgir Örn og Dominik sáu um flautuna í kvöld. Fyrir mína parta fannst mér þeir dæma þetta þokkalega í kvöld.

Stemning og umgjörð

HS Orku höllinn er skemmtilegt hús að heimsækja. Grindvíkingar taka manni opnum örmum og öll umgjörð er til fyrirmyndar. Mætingin hefði mátt vera meiri en fullt hrós á þau sem lögðu leið sína í höllina í kvöld.

Viðtöl

Pétur Már Sigurðsson er þjálfari Grindavíkur kvenna.Vísir/Hulda Margrét

„Ég er með klára leikmenn“

„Sóknarlega góðar í fyrri en þó svolítið klaufalega tapaðir boltar í fyrri hálfleik og vorum með ágætt forskot hérna inn í seinni hálfleik“ sagði Pétur Már Sigurðsson þjálfari Grindavíkur eftir sigurinn.

„Hægist aðeins á leiknum í seinni og mér fannst við varnarlega á hálfum velli bara mjög góðar hérna í seinni hálfleik og það var svona það sem ég var mest ánægður með“

„Við fórum svo svolítið inn í teiginn í seinni hálfleik þar sem við erum með stærð og styrk. Við fórum í það og þær gerðu frábærlega að klára þetta í restina“

Grindavík var að skjóta virkilega vel í upphafi leiks og það gaf þeim sjálfstraust inn í leikinn.

„Það er erfitt að spila á móti Keflavík, þær eru sprækar og pressa okkur, spila góða vörn og tóku okkur svolítið úr leiknum okkar en aftur á móti þá stoppum við hinum megin í staðin sem að gaf okkur smá líf í þetta“

„Ég er með klára leikmenn og við fórum í þann leik að henda boltanum bara inn í teig og það gekk vel og þannig klárum við þetta“ sagði Pétur Már Sigurðsson.

Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur

„Annar atvinnumaðurinn okkar skilaði sínu í dag en hinn ekki“

„Grindavík er með frábært lið. Uppleggið var kannski of mikið lagt á að stoppa Abby Beeman“ sagði Arnór Daði Jónsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tapið gegn Grindavík í kvöld.

„Hún er með átta stig og er 3/11 í skotum. Við gerum vel þar en Ellen Nyström á bara stórleik hérna í dag og við áttum í vandræðum með Farhiya Abdi og það má kannski meta það þannig að annar atvinnumaðurinn okkar skilaði sínu í dag en hinn ekki og þar kannski að einhverju leyti liggur líka munurinn“

Grindavík var að skjóta vel í upphafi leiks og þurfti Keflavík snemma að byrja elta leikinn.

„Ég held þær hafi verið sjö af tíu eftir fyrsta leikhluta fyrir utan línuna og eitthvað svipað inni í teig“

„Við þurfum bara meira frá atvinnumanninum okkar til þess að spila við frábært lið Grindavíkur og vinna“

Það mátti skynja á Arnóri Daða að hann hafi ekki verið sáttur með framlagið sem hann fékk frá sínu liði.

„Frá mjög mörgum jú og sumum ekki. Sagði ekki einhver einhvertímann fæst orð bera minnstu ábyrgð? Ég held að það sé svona punkturinn yfir i-ið núna“ sagði Arnór Daði Jónsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira