Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. október 2026 06:47 Erik Brynjar Schweitz Eriksson, geðlæknir í heimahjúkrun hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir aukna notkun quetiapíns við svefnvanda líklega skýra mikla aukningu á notkun lyfsins. Vísir Næstum tvöfalt fleiri fá geðrofslyf nú en fyrir tíu árum. Aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Geðlæknir segir lyfið í vaxandi mæli notað við svefnleysi í stað hefðbundinna svefn- og róandi lyfja. Notkun geðrofslyfsins sé þó ekki samþykkt sem svefnlyf og rannsóknir á áhrifum þess, einkum hjá öldruðum, séu af skornum skammti.
Íslendingar hafa lengi notað mikið af hefðbundnum svefnlyfjum þótt nokkuð hafi dregið úr notkun þeirra á síðustu árum. Vísbendingar eru hins vegar um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast yfir í aðra lyfjaflokka, það er lyf sem upphaflega voru þróuð til annarra nota. Þar á meðal er geðrofslyfið quetiapín. Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis fengu um 11.400 einstaklingar lyfið í fyrra, eða næstum tvöfalt fleiri en fyrir tíu árum. Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar hefur hlutfall notenda aukist um rúmlega helming á tímabilinu. Quetiapín er meðal annars notað við geðklofa og geðhvarfasýki. Lyfið hefur einnig slævandi áhrif og er því stundum notað í mun minni skömmtum við svefnleysi, þótt sú notkun sé ekki meðal samþykktra ábendinga. Allir Eftir aldri Allir Fjöldi einstaklinga/1.000 íbúa Telur svefnlyfjanotkun skýra stóran hluta aukningarinnar Erik Brynjar Schweitz Eriksson, geðlæknir í heimahjúkrun hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir aukna notkun quetiapíns við svefnvanda vera eina líklegustu skýringuna á fjölguninni. Hann tekur þó fram að matið byggist á reynslu hans úr daglegu starfi en ekki sérstakri úttekt. „Það sem maður sér er að þetta er talsvert mikið notað sem svefnbætandi lyf. Það hefur aukist á undanförnum árum, meðal annars vegna þess að menn eru að færa sig meira frá ávanabindandi róandi og slævandi lyfjum eins og stillnoct, immovane og sobril,“ segir Erik. Hann segir þróunina sjást bæði meðal yngri og eldri fullorðinna og að notkun quetiapíns við svefnleysi hafi einnig aukist í nágrannalöndunum. Að hans mati geti lyfið haft ákveðna kosti umfram hefðbundin svefn- og róandi lyf þegar kemur að langtímanotkun. „Það myndast síður þol og lyfið veldur síður fráhvörfum þegar því er hætt eða það gleymist. Virknin helst því betur og það þarf síður að vera stöðugt að hækka skammtana eins og með hefðbundnu svefnlyfin. Þá ýtir það ekki undir fíkn,“ segir Erik. Hann leggur þó áherslu á að quetiapín sé ekki hættulaust og að aukaverkanir geti fylgt notkun þess eins og annarra lyfja. Mest aukning meðal eldra fólks Tölur landlæknis sýna að aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Mest hefur hlutfall notenda aukist meðal 65 til 79 ára, eða um sjö af hverjum tíu miðað við íbúafjölda á síðustu tíu árum. Í fyrra fengu um 4,5 prósent fólks á þessum aldri lyfið. Meðal þeirra sem eru 80 ára og eldri hefur hlutfall notenda aukist um rúmlega þriðjung á sama tímabili. Rúm sex prósent fólks í þeim aldurshópi fengu lyfið í fyrra. Erik segir fleiri en eina skýringu á aukningunni. Quetiapín sé einnig notað við geðrofseinkennum og stundum hegðunartruflunum í tengslum við heilabilun og hvort tveggja aukist með hækkandi aldri. Hann telur þó líklegt að aukin notkun við svefnleysi skýri stóran hluta heildaraukningarinnar, þótt ekki liggi fyrir gögn sem staðfesti það. „Ég sé fyrir mér að þetta sé fyrst og fremst langmesta aukningin, ímynda ég mér, vegna þess að það er notað sem svefnbætandi lyf,“ segir Erik. Skortir rannsóknir á áhrifum lyfsins á eldra fólk Hefðbundin svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct eru almennt ætluð til skammtímanotkunar, yfirleitt ekki lengur en í tvær til fjórar vikur. Erik segir stöðuna aðra þegar kemur að quetiapíni. Notkun þess við svefnleysi sé utan samþykktra ábendinga, svokölluð off-label notkun, og skýrar leiðbeiningar skorti um hversu lengi eigi að nota það í þeim tilgangi. „Það eru ekki til neinar klárar leiðbeiningar sem segja manni til um þetta, hvort sem það er til skemmri eða lengri tíma,“ segir Erik. Hann segir skort á rannsóknum sérstaklega bagalegan þegar kemur að eldra fólki, sem geti verið viðkvæmara fyrir áhrifum lyfja. „Þessi hópur bregst öðruvísi við lyfjum heldur en yngri fullorðnir. Það er hægara niðurbrot á lyfjum og aukin næmni fyrir þeim, þannig að okkur vantar rannsóknir,“ segir Erik. Læknar þurfi því að nokkru leyti að reiða sig á klíníska reynslu þegar lyfið er notað við langvinnum svefnvanda. Sú reynsla hefur að hans sögn verið ágæt en það þýði ekki að lyfið sé án áhættu. Mun minni skammtar notaðir við svefnleysi Erik bendir á að mikill munur sé á skömmtum quetiapíns eftir því við hverju lyfið er notað. Við geðrofssjúkdómum eða geðhvarfasýki geti dagsskammtar verið á bilinu 200 til 800 milligrömm. Þegar lyfið sé hins vegar notað við svefnleysi, til dæmis hjá eldra fólki, séu skammtarnir yfirleitt mun minni, eða um 12,5 til 75 milligrömm. Þótt tölur landlæknis sýni mikla fjölgun notenda og aukningu í afgreiddu magni kemur ekki fram hversu margir fá lyfið vegna svefnleysis og hversu margir vegna geðsjúkdóma eða annarra einkenna. Erik segir nauðsynlegt að hafa betri upplýsingar um ástæður lyfjaávísana. „Það væri alltaf gott að hafa betri og skýrari gögn til þess að átta sig á hvert við erum að stefna og hvað við erum að nota lyfin í,“ segir Erik. Telur Íslendinga sækja mikið í lyf við svefnvanda Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af hefðbundnum svefnlyfjum. Erik telur að mikil lyfjanotkun við svefnvanda hér á landi geti að hluta skýrst af viðhorfum til lyfjameðferðar. Hann bendir einnig á að miklar árstíðabundnar breytingar á birtuskilyrðum geti haft áhrif á svefn og sólarhringstakt. „Minn grunur er að einna helst sé það bara hversu sækin við erum í að nota lyf og þrýstingur á lækna er almennt mikill þegar fólk er með svefnvanda. Þá hafa heimilislæknar almennt lítinn tíma til að sinna skjólstæðingum sínum og hafa þar af leiðandi minni tíma til að ræða um áhrif svefnlyfjanotkunar,“ segir Erik. Hann segir lækna jafnframt þurfa að skoða eigin ávísanavenjur og hvernig staðið sé að meðferð svefnvandamála. Þótt notkun hefðbundinna svefnlyfja hafi dregist saman segir Erik ekki hægt að fullyrða að Íslendingar séu almennt farnir að nota minna af lyfjum við svefnleysi. „Til þess skortir skýrari upplýsingar um hversu stór hluti notkunar annarra lyfja, svo sem quetiapíns, sé í raun vegna svefnvandamála,“ segir hann að lokum.
Heilsa Svefn Heilbrigðismál Embætti landlæknis Landspítalinn Lyf Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira