Upp­gjörið: KR - Njarð­vík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þórir sneri aftur í lið KR í kvöld. Honum gekk illa framan af líkt og öllu liðinu en steig upp í fjórða leikhluta.
Þórir sneri aftur í lið KR í kvöld. Honum gekk illa framan af líkt og öllu liðinu en steig upp í fjórða leikhluta. Vísir/Guðmundur

KR vann 84-73 heimasigur á Njarðvík í annarri umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Fæðingin var erfið gegn vængbrotnum Njarðvíkingum, en það hafðist á lokakaflanum.

KR hafði unnið heldur vængbrotið lið Grindavíkur með herkjum í fyrsta leik og mætti álíka vængbrotnum Njarðvíkingum í kvöld sem voru án þriggja lykilmanna.

Brynjar Kári Gunnarsson var öflugur í liði Njarðvíkur.Vísir/Guðmundur

Njarðvíkingar voru staðráðnir í að bæta upp fyrir tap fyrir Tindastóli í fyrsta leik en þar koðnuðu þeir í fjórða leikhluta.

Það sást á gestunum sem tóku völdin snemma leiks og voru með yfirhöndina allt frá upphafi gegn KR-ingum sem virtust hálf dofnir. Jakob Örn Sigurðarson lét í sér heyra og barði í spjöld í leikhléum í fyrstu tveimur leikhlutunum án árangurs en Njarðvík leiddi þó aðeins með sex stiga mun í hálfleik eftir að hafa mest komist tólf stigum yfir.

Þriðji leikhluti var heldur sérstakur en báðum liðum tókst að skora töluvert, þó mestmegnis af vítalínunni. Leikurinn var mikið stopp og flæðið lítið.

KR-ingar fagna.Vísir/Guðmundur

Njarðvík var enn yfir, með fimm stiga forystu fyrir fjórða og síðasta leikhlutann og þá loks vaknaði KR-liðið. Heimamenn byrjuðu fjórða leikhlutann á 11-1 kafla og við það brotlentu vængbrotnir gestir.

Gestunum tókst ekki að vakna úr rotinu og KR vann öruggan sigur 84-73 sem var aldrei í hættu á seinni hluta fjórða leikhlutans.

KR vinnur því annan keimlíkan sigurinn í röð, mjög svipaðan þeim í Grindavík, og Njarðvík tapar aftur með slökum fjórða leikhluta eftir fína frammistöðu fram að því.

Atvik leiksins

Sniðskot Þóris Guðmundar Þorbjarnarsonar á þriðju mínútu fjórða leikhluta sem kom KR 70-68 yfir. Þar komst KR yfir í fyrsta sinn síðan í blábyrjun leiks og lét forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði leiks.

Stjörnur og skúrkar

Adam Ramstedt var frábær í liði KR með 12 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar. Linards og Þórir stigu upp í fjórða leikhluta eftir að hafa verið slakir fram að því. Þórir skoraði 15 stig, tók 5 fráköst og gaf 11 stoðsendingar þrátt fyrir að vera ryðgaður. Tölfræði KKÍ segir að hann hafi tapað fimm boltum en ég tel sjö.

Makye Richard var bestur Njarðvíkinga og dró vagninn stærstan part. Hann gaf hins vegar eftir á lokakaflanum líkt og allt liðið. Richard skoraði 23 stig og var stigahæstur á vellinum.

Dómararnir

Ekkert vesen. Nokkrir umdeildir dómar hér og þar en allir 50/50 matsatriði. Ekkert sem hafði stór áhrif á niðurstöðuna.

Stemning og umgjörð

Stuðningsmenn KR sungu og trölluðu allan leikinn.Vísir/Guðmundur

Öflug hvolpasveit í Vesturbænum sem söng og trallaði frá upphafi til enda. Heldri menn tóku undir í stemningunni þegar KR loks sýndi sitt rétta andlit í lokin.

Viðtöl

Rúnar Ingi: „Vantar bara pung“

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur.Vísir/Guðmundur

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var eðlilega súr og svekktur eftir leik

„Þetta er bara ömurlegt. Það er ekkert annað sem ég get sagt. Það er ömurlegt að fara út úr þessu húsi með núll stig en aftur erum við bara eins og kjánar í fjórða leikhluta. Það vantar bara pung og getu til að breyta leiknum. Körfubolti er 40 mínútur og þetta snýst líka um að geta fundið eitthvað, þótt það sé erfitt, í fjórða leikhluta,“ segir Rúnar Ingi og bætir við:

„Þar skera lið sig oft úr. Við erum núna búnir að sýna það tvo leiki í röð að við vitum ekkert hvað við erum að gera þegar við erum aðeins undir og hitt liðið setur aðeins meiri pressu. Þá verðum við litlir í okkur og það er áhyggjuefni.“

Tapaðist þetta vegna þreytu eða andlegra vandræða með hugarfar?

„Ég held það sé blanda af báðu. Með þessa atvinnumenn þá er ég að þvinga þá í margar mínútur og þeir þurfa að gera mjög mikið í leikjunum sem tekur sinn toll. En menn fara inn í sig í fjórða leikhluta,“

„Við reyndar fengum alveg nokkur opin skot í fjórða leikhluta en þá var eins við værum að kasta múrsteinum. Það er einhverjir missi trúna á því að þeir geti hitt bolta ofan í körfuna. Það er áhyggjuefni að við þurfum að hafa leikmenn sem hafa trú á sér á þessum tímapunkti og ég þarf að finna út úr því,“ segir Rúnar Ingi.

Þórir: Gaf fjóra eða fimm í röð

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson átti erfitt uppdráttar framan af en steig upp þegar það skipti máli.Vísir/Guðmundur

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson spilaði sinn fyrsta leik í vetur eftir að hafa verið meiddur gegn Grindvíkingum. Hann var hægur af stað líkt og allt hans lið.

„Við fórum hægt af stað og vorum ekki að keyra nægilega hratt. Þetta var jafn leikur og við undir í hálfleik. Mér fannst við ná hraðanum í þriðja og þá hlaupa þeir með okkur en við náum að læsa þessu í fjórða,“ segir Þórir.

Þórir tapaði boltanum nokkrum sinnum í byrjun leiks í kvöld. Var hann ryðgaður eftir meiðslin?

„Það má segja það. Ég var spenntur að komast út á gólf, ég var kannski aðeins og æstur. Ég veit ekki hvort ég hafi gefið fjóra eða fimm bolta í röð en ég er bara ánægður með það að vera ekkert meiddur og geta spilað. Það var ofboðslega góð mæting í höllina í kvöld og frábær stuðningur,“ segir Þórir sem segist þá orðinn góður í kálfanum sem hafði angrað hann í aðdragandanum.

„Ég held hann sé bara góður og ég fann ekkert fyrir honum. Það var mjög skrýtin tilfinning að vera ekki með í síðasta leik, ég er ekki vanur því að vera frá. En þeim mun betra að spila í kvöld,“ segir Þórir.

Þórir tekur þá lokakaflann með í næsta verkefni.

„Við gáfumst ekki upp og héldum áfram að reyna að hlaupa okkar leik og fengum gott framlag frá mörgum. Reynir kom frábær inn í þennan leik og spilaði frábæra vörn í fjórða leikhlutanum og Lars gerði það líka.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira