Skoðun

Sam­staða um Suður­nesin sem drif­kraft vaxtar

Berglind Kristinsdóttir, Pálmi Freyr Randversson og Guðjón Skúlason skrifa

 Svo hröðum vexti fylgja miklar áskoranir, ekki síst fyrir sveitarfélögin sem þurfa að halda í við eftirspurn eftir húsnæði. Um leið opnast fjölmörg tækifæri til fjölbreyttari atvinnuuppbyggingar í kringum alþjóðaflugvöllinn og til að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum.

Miðvikudaginn 14. október fer fram ráðstefnan „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“ í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Markmið hennar er meðal annars að ræða hvernig Suðurnesin geta knúið áfram vöxt fyrir Ísland allt. Sérfræðingar úr ýmsum áttum fjalla um tækifærin sem leynast á svæðinu, meðal annars markvissa uppbyggingu, áhrif aukinnar erlendrar fjárfestingar á verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi.

Suðurnesin sem fyrirmynd

Það hefur margsannað sig að þrautseigja og kraftur einkenna bæði fólk og fyrirtæki á Suðurnesjum og metnaðurinn fyrir framtíðinni hefur staðið af sér alls konar áskoranir síðustu ár. Við sem vinnum að því að hlúa að og styrkja enn frekar samfélagið og atvinnulífið á Suðurnesjum vitum að ef rétt er að hlutunum staðið getur svæðið enn frekar orðið drifkraftur vaxtar á Íslandi öllu.

Hér er nú þegar að finna margar þeirra vaxtargreina sem ný atvinnustefna stjórnvalda setur á oddinn, svo sem gagnaver, landeldi, jarðvarma, iðngarða og ferðaþjónustu. Það er ótal margt sem gerir Suðurnesin einstök, ekki aðeins í samanburði við önnur svæði á Íslandi heldur á heimsmælikvarða. Má þar nefna Svartsengisvirkjun, þar sem þróuð var aðferð til að hita ferskvatn með jarðhitagufu og brautryðjendastarf var unnið í því að vinna saman raf- og varmaorku. Eins má líta til herstöðvarinnar sem mótaði atvinnulíf á svæðinu í um hálfa öld og Keflavíkurflugvallar sem er langmikilvægasta tenging landsins við umheiminn og mikilvæg undirstaða efnahags- og atvinnulífs á svæðinu. Að lokum má ekki gleyma einstakri náttúru Reykjanesskagans, sem fékk árið 2015 viðurkenningu sem UNESCO Global Geopark árið 2015.

Fjölbreytt atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur

Það er okkar hlutverk að styrkja Suðurnesin sem aðlaðandi stað til að búa á, starfa og reka fyrirtæki. Við þurfum fjölbreyttara atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur og byggir á styrkleikum svæðisins: grænni orku, nálægð við alþjóðaflugvöll og öflugum mannauði. Mikil tækifæri felast í því að efla flugvallartengda starfsemi en ekki síður í því að hlúa að og byggja upp allt það góða sem fyrir er.

Við höfum bæði metnað og trú á því að Suðurnesin geti verið leiðandi afl í að byggja upp alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands á heimsvísu en til þess þarf áframhaldandi seiglu og gott samstarf. Kadeco, sem leiðir samstarf um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa því tekið höndum saman. Við undirrituð trúum því að öflug Suðurnes séu, og geti í enn ríkara mæli orðið, lykillinn að samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi og hlökkum til að ræða þessi málefni betur með öðrum sem hafa metnað og trú á svæðinu.

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco

Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

Guðjón Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda á Suðurnesjum





Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×