Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. október 2026 14:01 Flettu blaði, kveiktu á útvarpinu eða skrunaðu niður fréttavef. Þú lest um átök á Alþingi og hækkun stýrivaxta. En þú lest líka um konuna sem missti manninn sinn, unga föðurinn sem greindist með krabbamein, húsnæðismarkaðinn, nýja veitingastaði og arkitektúr. Þetta er fjölmiðlun. Hún hefur alltaf verið fjölbreytt, af því að líf fólks er fjölbreytt. Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla er á öðru máli. Í frummati frá 22. september telur nefndin efni Vikunnar og Húsa og híbýla fremur umfjöllun um samfélagsleg málefni en fréttir. Slík umfjöllun var þurrkuð út úr stuðningskerfinu í júní. Niðurstaðan: Vikan hefur komið út í tæp 90 ár, en að mati ríkisins flytur hún ekki fréttir. Birtíngur hefur andmælt og endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. En spurningin varðar alla fjölmiðla landsins: Hver á að ákveða hvað er frétt, ritstjórnin eða ríkið? Reglugerðin er skýr: fjölmiðillinn metur, ekki nefndin Í reglugerð nr. 788/2026, sem ráðherra setti sjálfur, eru fréttir skilgreindar sem miðlun frásagna af atburðum líðandi stundar sem varða almenning að mati fjölmiðils. Ekki að mati nefndar. Ekki að mati ráðuneytis. Viðtöl Vikunnar um reynslu fólks af heilbrigðiskerfinu, missi og fjölskyldulífi varða almenning. Það vita aðrir fjölmiðlar: Vísir, DV, Mannlíf og fleiri hafa ítrekað birt viðtöl Vikunnar sem fréttir, með vísan í blaðið. Endursögnin er frétt. Frumunnið viðtalið er það ekki. Sú rökfræði stenst enga skoðun. Ábyrgðin er ráðherrans, og hann vissi hvað myndi gerast Þetta var ekki slys. Í greinargerð með frumvarpi ráðherra kemur skýrt fram að ekki eigi að styðja annað efni en fréttir og fréttatengt efni. Birtíngur hafði áður fengið stuðning vegna Vikunnar, og 22. janúar áttum við fund með ráðherra um stöðu tímarita, áður en frumvarpið var lagt fram. Í umsögn til Alþingis í maí benti fjölmiðlanefnd sjálf á að miðlar sem áður uppfylltu skilyrðin gætu dottið út, og taldi óljóst hvort umfjöllun um menningu, lífsstíl eða viðtöl um dægurmál teldist til frétta. Lögin voru samþykkt samt. Ráðherra sagði á Alþingi í september 2025 að stuðningur við fjölmiðla ætti að eiga sér stað „án þess að ráðherra komi nokkurn tímann að því“. Í Kastljósi í september sagði hann að fólk ætti rétt á fréttum frá sínum sjónarhóli. Vikan hefur í tæp 90 ár sagt fréttir frá sjónarhóli kvenna og fjölskyldna. Einmitt sú nálgun er nú dæmd úr leik, á grundvelli frumvarps og reglugerðar ráðherrans sjálfs. Spjótin beinast nú að fjölmiðlanefnd, sem heldur utan um umsóknirnar, og úthlutunarnefndinni sem metur þær. En nefndirnar starfa eftir lögum og reglugerð ráðherra. Ráðherra ber ábyrgðina en lætur nefndirnar taka slaginn. Eftirlitið hefur hins vegar vaxið: stöðugildum hjá fjölmiðlanefnd fjölgaði úr einu árið 2011 í sex árið 2023, á sama tíma og starfsfólki einkarekinna miðla fækkaði verulega. Viðskiptaráð hefur lagt til að nefndin verði lögð niður og ég tek undir það. Eftirlitsstofnun með fjölmiðlum er óþörf í nútímasamfélagi. Ríkið styrkir fréttirnar en sveltir það sem fjármagnar þær Fjölmiðill er ekki hlaðborð þar sem ríkið getur tínt út „alvöru“ efnið. Lesendur kaupa áskrift og auglýsendur kaupa pláss vegna heildarinnar. Matarumfjöllun, viðtöl, hönnun og menning eru ekki uppfyllingarefni. Oftast er það einmitt fjölbreytta efnið sem aflar teknanna sem halda ritstjórninni gangandi, líka þeim hluta hennar sem skrifar harðar fréttir. Samkvæmt nefndaráliti Alþingis er stuðningurinn rökstuddur með því að ný tækni og alþjóðleg samkeppni hafi grafið undan tekjuöflun innlendra fjölmiðla. Markmiðið hlýtur að vera að þeir geti staðið á eigin fótum. Ríki sem styður aðeins það sem það sjálft kallar fréttir, en ekki efnið sem fólk greiðir fyrir, refsar miðlum fyrir nákvæmlega það sem kerfið á að hvetja til. Stóru fjölmiðlarnir reka lífsstílsdeildir, matarvefi og viðtalsþætti, og fá stuðning. Þegar sams konar efni fleytir einum miðli inn í kerfið en heldur öðrum utan þess er ríkið farið að velja sigurvegara. Fjölmiðill þegar kemur að skyldum, ekki stuðningi Vikan og Hús og híbýli eru skráðir fjölmiðlar. Við skilum fjölmiðlanefnd upplýsingum árlega, blaðamenn okkar eru í Blaðamannafélagi Íslands og lögin krefja okkur um hlutlægni og nákvæmni í fréttum eins og alla aðra. Ef blaðamenn okkar skrifa ekki fréttir, eiga þeir þá heima í stéttarfélagi blaðamanna? Annaðhvort erum við fjölmiðill eða ekki. Ofan á þetta er umsóknin vegna ársins 2025 metin eftir lögum og reglugerð frá sumrinu 2026. Leikreglunum var breytt eftir að leiknum lauk. Í hvaða annarri atvinnugrein þætti það boðlegt? Ég tel raunar að ríkið eigi hvorki að styrkja fjölmiðla né keppa við þá, eins og RÚV gerir með um 2,6 milljarða króna í auglýsinga- og kostunartekjum. En á meðan keppinautar fá ríkisfé eru allir í raun neyddir til að sækja um. Þá er lágmarkskrafa að úthlutað sé af jafnræði, ekki eftir því hvaða efni nefnd ráðherra telur nógu fínt til að teljast frétt. Þegar tímaritin hverfa fara störfin með Í kringum hvert tímarit stendur heil keðja: ljósmyndarar, hönnuðir, umbrotsfólk, prófarkalesarar, prentsmiðjur, dreifingaraðilar og verslanir um allt land. Þetta eru íslensk störf sem skila sköttum hér á landi, ólíkt erlendu efnisveitunum sem fengu um helming auglýsingafjár á Íslandi árið 2023. Ef tímaritin fá ekki sömu lífæð og aðrir miðlar hverfa störfin með þeim, og fagþekking sem tók áratugi að byggja upp verður ekki sótt aftur með einu pennastriki. Frummatið sýnir svart á hvítu að kerfið gerir ekki ráð fyrir tímaritum. Ég hvet stjórnvöld til að finna þeim stað, innan fjölmiðlastuðnings eða með bókaútgáfu. Og ég hvet úthlutunarnefndina til að lesa reglugerðina sem hún starfar eftir. Þar stendur að það sé fjölmiðillinn sem metur hvað varðar almenning. Lesendur Vikunnar hafa svarað því í tæp 90 ár. Höfundur er eigandi og framkvæmdastjóri Birtíngs útgáfufélags Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun