Skoðun

Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðu­blaðið

Ari Sigurðsson skrifar

Tíu hlaðvarpsstjórnendur skrifuðu saman grein á Vísi 9. október og höfðu fundið nýtt orð yfir starfsfólk Fjölmiðlanefndar: glassúrfólkið. Það „hvorki bakar né smíðar“, segja þau, en fær samt „greitt um hver mánaðamót“. Skeytunum er einkum beint að Elfu Ýr Gylfadóttur, sem lætur af störfum í haust eftir fimmtán ár sem framkvæmdastjóri nefndarinnar.

Hvenær er hlaðvarp fjölmiðill?

Byrjum á því sem allir eiga að vita og eru sammála um: ekki eru öll hlaðvörp fjölmiðlar. Hlaðvarp nemendafélags er það ekki frekar en skólablaðið, eins og Elfa Ýr benti sjálf á. En Alþingi skilgreindi hlaðvörp í fjölmiðlalögum árið 2011, og sá sem miðlar efni reglulega til almennings og ræður sjálfur efnistökum og viðmælendum fer með það sem lögin kalla ritstjórn. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi árið 2023 tiltekið hlaðvarp vera fjölmiðil í skilningi laganna. Þetta gildir sérstaklega þegar hlaðvörp eru rekin í hagnaðarskyni, sinna auglýsingasölu og eru jafnvel aðalatvinna hlaðvarpsstjórnanda.

Komið gott, Dr. Football og Chess after Dark voru öll á lista yfir tíu vinsælustu hlaðvörpin á Spotify hér á landi í fyrra. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu greiðir um fimmtungur fólks á aldrinum 18 til 29 ára fyrir áskrift að íslensku hlaðvarpi, en aðeins 1,2% að íslenskum fréttamiðli. Vinsælustu hlaðvörp landsins eru ein þannig mikilvægasta dreifingarleið fjölmiðlunar og neysluleið almennings fyrir hljóð- og myndefni á Íslandi.

Þetta er líka rekstur, og það segja höfundarnir sjálfir: „Hlaðvörpin okkar eru örfyrirtæki.“ Hagnaður félagsins að baki Dr. Football virðist myndarlegur miðað við nýjustu opinberu fjárhagstölur, og það vafalaust verðskuldað. Einn úr hópnum hefur kallað þetta „hliðargigg“. Gott og vel, en slík gigg sem ná til meginþorra landsmanna, með fasta dagskrá, ritstjórn, og auglýsingatekjur er samt fjölmiðill.

Stundarfjórðungur – 15 mínútna vesen

Skráning er tilkynning, ekki leyfi, og enginn þarf að biðja um að mega tjá sig. Fyllt er út rafrænt eyðublað um það hver ber ábyrgð á efninu, hver á miðilinn og hver ritstjórnarstefnan er. Ritstjórnarstefnan getur verið „að hafa gaman“. Það tekur um korter að fylla þetta út og kostar ekki krónu, en veitir nefndinni þá yfirsýn sem Alþingi ætlaði henni. Á annan tug hlaðvarpa hefur þegar gengið frá þessu, þar á meðal Dr. Football.

Þess í stað hafa sumir kosið að standa í bréfaskiptum mánuðum saman, ráða lögmenn, funda með ráðherra og skrifa blaðagreinar. Árið 2021 skráði Dr. Football sig ekki fyrr en eftir ítrekaðar beiðnir og eftir að nefndin hafði sent stefnuvott. Dr. Football naut liðsinnis fyrrverandi lögmanns LEX lögfræðistofu í ágreiningnum. Stjórnandi Einnar pælingar viðurkenndi við Vísi í vor að auðveldast væri líklega að skrá sig og klára málið.

Sömu reglur fyrir alla

Nefndinni hefur að eigin sögn borist fjöldi kvartana vegna hlaðvarpa, einkum út af auglýsingum á áfengi, nikótíni og veðmálum. Dr. Football var meðal annars sektað fyrir áfengisauglýsingu árið 2021 og tvö önnur hlaðvörp fengu ákúrur fyrir veðmála- og áfengisauglýsingar. Í spjallþætti renna efni og auglýsing auðveldlega saman, og hlustandinn á rétt á að vita hvenær spjallið er keypt.

Í ágúst sektaði nefndin Sýn um tvær milljónir króna vegna áfengis- og nikótínauglýsinga í útvarpsþætti. Hvers vegna ætti að vera mögulegt að færa hljóðútsendingar í hlaðvarpsform, eins og vinsælustu hlaðvörp landsins gera, og sleppa þannig við eftirlit sem fjölmiðill eins og Sýn sætir? Hlustunartölur sýna okkur að til dæmis Dr. Football og Komið gott skáka mörgum útvarpsþáttum og útvarpsmönnum hefðbundinna miðla. Ef eitthvað er, kallar staðan á áframhaldandi skráningu og eftirlit, m.a. allskonar auglýsingum, illa merktir og mislöglegar. Er það sanngjörn samkeppnisstaða gagnvart fjölmiðli eins og Sýn eða Útvarpi Sögu, að formið skipti máli frekar en efnistök, skipulag og raunverulegar vinsældir?

Annaðhvort eða

Annars vegar er okkur sagt að það sem fram fer í hlaðvörpunum sé „töluvert ómerkilegra“ en fjölmiðlun. Annar stjórnandi Komið gott færði á dögunum þau rök að fjölmiðlamenn segi satt og rétt frá en það gildi ekki um þau því „við Kristín ljúgum upp á fólk og uppnefnum þaðy.“

Hins vegar eru það einmitt hlaðvarpararnir sem að eigin sögn „skapa verðmæti“ á meðan opinberir starfsmenn þiggja laun fyrir glassúr og þiggja laun hver mánaðarmót. Annaðhvort eru þessi hlaðvörp marklaust hjal sem eiga skilið að vera í friði, eða verðmæt miðlun sem þúsundir hlusta á. Hvort tveggja gengur ekki.

Orkunni sem fer í uppnefnin væri betur varið í efnistökin og í þá samfélagslegu ábyrgð sem fylgir því að ná eyrum þúsunda. Það virðist þörf á miðað við nýleg framlög Komið gott til gleðigöngunnar, og endalausa andúð Dr. Football og Þjóðmála í garð starfsmanna hins opinbera, þ.m.t. kennara, hjúkrunarfræðinga, heilbrigðisfulltrúa og jú lögfræðinga sem gæta neytenda- og almannahagsmuna.

Ísland er ekki eitt á báti

Það er rétt að til stendur að breyta fjölmiðlalögunum hér, en í hvaða mynd liggur ekkert fyrir um. Þangað til gilda þau, eins og ráðuneytið hefur sjálft bent á, og það liggja ríkir neytenda og almannahagsmunir að baki núverandi fjölmiðlalögum.

Í mörgum Evrópuríkjum er skráningarskylda á hlaðvörpum. Og hvergi innan ESB og ekki heldur í Bretlandi eru hlaðvörp reglulaus eða án nokkurs konar eftirlits:

Til hvers eru lögin?

Fjölmiðlalögunum er ætlað að standa vörð um tjáningarfrelsi, fjölbreytni og neytendur, sama hvaða miðill á í hlut, m.a. að auglýsingar séu aðgreindar frá efni, að börn séu varin, að sá sem ranglega er fjallað um fái að svara fyrir sig og að heimildarmenn skráðra miðla njóti verndar. Af sömu ástæðu skyldar fjölmiðlafrelsisreglugerð ESB, sem bíður innleiðingar hér, fjölmiðla til að upplýsa um eigendur sína og ríkin til að halda skrá um eignarhaldið.

Þetta eru hagsmunir hlustenda, ekki stofnunar eins og Fjölmiðlanefndar. Það er illa komið fyrir ráðuneyti menningarmála og löggjafanum, ef lög breytast eftir pöntun þegar hlaðvarpsstjórnendur kvarta yfir 15 mínútna eyðublaði og urða yfir ríkisstarfsmenn. Það er von undirritaðs að ráðherra menntamála og í kjölfarið Alþingi láti hagsmuni hlustenda, neytenda og almennings ráða för í mögulegri breytingu á fjölmiðlalögum, en ekki hlaðvarpsstjórnendur sem sumir hverjir eru einnig starfsmenn ríkisstyrktra fjölmiðla í eigu ríkisstyrktra útgerða, og ríkisbankans.

höfundur er áhugamaður um fjölmiðlafræði og samfélagsumræðu




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×