Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir og Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifa 12. október 2026 14:02 Sterk tengsl og snemmtækur stuðningur efla farsæld barna í Reykjavík Í hverfum Reykjavíkur er unnið að því að efla tengsl barna og fjölskyldna, auka þátttöku í frístundastarfi og tryggja að stuðningur sé aðgengilegur þegar hans er þörf. Það starf krefst samstarfs og eftirfylgni. Einhver þarf að tengja saman þá sem sinna börnum og fjölskyldum og halda utan um sameiginlegar aðgerðir. Sem verkefnastjórar lýðheilsu, forvarna og félagsauðs vinnum við að þessari samhæfingu í hverfum borgarinnar. Við tengjum saman skóla, foreldra, frístundastarf og aðra þjónustuveitendur. Hluti starfs okkar er að greina niðurstöður æskulýðsrannsókna með skólastjórnendum og forstöðumönnum félagsmiðstöðva, móta aðgerðaáætlanir og kynna niðurstöður fyrir þeim sem sinna börnum og fjölskyldum. Þannig tengjum við upplýsingar um líðan og aðstæður barna við forvarnarstarfið í nærumhverfi þeirra. Mikilvægt að hafa stefnu og góðar mælingar Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026 sýna fjölmarga styrkleika í lífi barna og ungmenna í Reykjavík. Góð fjölskyldutengsl, vinátta og þátttaka í íþróttum og tómstundum skapa mikilvægan grunn að vellíðan og forvörnum. Niðurstöðurnar hjálpa okkur að sjá hvar efla þarf stuðning og hvaða styrkleika má byggja á í hverju skólasamfélagi. Alls tóku 8.542 nemendur í 4.–10. bekk í Reykjavík þátt í Íslensku æskulýðsrannsókninni. Svör þeirra veita mikilvæga innsýn í uppvaxtarumhverfi barna og sýna bæði hvar styrkleikar liggja og hvar efla má stuðning. Niðurstöðurnar tengjast þremur meginmarkmiðum lýðheilsustefnu Reykjavíkur til 2030: að bæta heilsu og vellíðan á öllum æviskeiðum, stuðla að jöfnuði til heilsu og vellíðanar, hafa heilsu og vellíðan að vegvísi í allri starfsemi borgarinnar. Í lífi barna snúast þessi markmið meðal annars um öruggar aðstæður, góð tengsl og jöfn tækifæri til þátttöku. Íslenska forvarnamódelið styður við þessar áherslur með því að beina sjónum að fjölskyldu, skóla, vinahópi og frítíma. Á þessum sviðum má styrkja verndandi þætti í daglegu umhverfi barna, svo sem stuðning fullorðinna, jákvæð félagsleg tengsl og þátttöku í uppbyggilegu starfi. Samstarf foreldra, skóla, frístundastarfs, íþrótta og samfélagsins er lykilþáttur í þeirri nálgun. Þessi nálgun fellur vel að fyrsta stigi þjónustu samkvæmt farsældarlögunum. Samkvæmt 10. grein laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nær fyrsta stig bæði til grunnþjónustu sem er aðgengileg öllum börnum,foreldrum og einstaklingsbundins snemmtæks stuðnings. Sá stuðningur byggir á frummati á þörfum barns og markvissri eftirfylgni. Fyrsta stigið felur þannig í sér að hlúa að góðum aðstæðum fyrir öll börn og bregðast snemma við þegar barn þarf aukna aðstoð. Samvera með fjölskyldunni / foreldrar í mikilvægu hlutverki Fjölskyldutengsl koma skýrt fram sem styrkleiki í æskulýðsrannsókninni. Meðal nemenda í 6.–10. bekk segjast 90% fá þann tilfinningalega stuðning og hjálp sem þau þurfa frá fjölskyldu sinni. Þá eiga 84% auðvelt með að ræða vandamál við að minnsta kosti annað foreldri sitt og 83% gera eitthvað skemmtilegt með foreldrum sínum að minnsta kosti vikulega. Jafnstórt hlutfall borðar kvöldmat með foreldrum daglega eða fjögur til sex kvöld í viku. Samvera og opið samtal skapa rými fyrir stuðning í hversdagslífinu. Að hlúa að þessum tengslum og styðja fjölskyldur við að eiga tíma saman er því mikilvægur þáttur í heilsueflingu og forvörnum. Aðgengileg foreldrafræðsla og ráðgjöf geta einnig stutt við snemmtækan stuðning og viðbrögð þegar áhyggjur vakna af líðan eða aðstæðum barns. Foreldrasamstarf er mikilvægur hluti af þessu starfi. Í samstarfi við foreldrafélög hverfanna vinnum við að því að niðurstöður æskulýðsrannsókna séu kynntar foreldrum og upplýsingar um úrræði í hverfunum séu aðgengilegar. Við leggjum sérstaka áherslu á að ná til fjölbreytts hóps foreldra, þar á meðal þeirra sem hafa annað móðurmál en íslensku. Markmiðið er að foreldrar þekki stuðninginn sem er í boði og geti nýtt hann fyrir börn sín. Vinátta er einnig áberandi styrkleiki. Í 4. og 5. bekk segjast 99% eiga einn eða fleiri góða vini og hlutfallið er 98% meðal nemenda í 6.–10. bekk. Jafnframt segja 11% nemenda í 6.–10. bekk að þeim hafi oft eða alltaf fundist þau einmana síðastliðna tólf mánuði. Þar felst tækifæri til að efla félagslega þátttöku og skapa aðstæður þar sem hvert barn upplifir að það tilheyri. Í anda fyrsta stigs þjónustu er mikilvægt að taka snemma eftir börnum sem finna til einmanaleika, eiga erfitt með að tengjast hópnum eða taka síður þátt. Þá má kanna þarfir barnsins í samtali við það og foreldra þess og finna stuðning við hæfi. Það getur meðal annars verið aðstoð við að hefja þátttöku í frístundastarfi eða aukinn stuðningur við félagsleg tengsl í skólanum. Þátttaka í íþróttum og skapandi starfi gefur góðan grunn að heilsueflingu Í 4. og 5. bekk segjast 91% æfa eina eða fleiri íþróttir og 32% stunda listnám. Meðal nemenda í 6.–10. bekk æfa 65% íþróttir að minnsta kosti tvisvar í viku og 20% stunda listnám eða listastarf vikulega eða oftar. Þá sækja 36% félagsmiðstöð tvisvar til fjórum sinnum í mánuði eða oftar. Í verkefninu Íþróttir og tómstundir fyrir alla er unnið að því að auka jöfn tækifæri til þátttöku og veita snemmtækan stuðning. Verkefnið beinist meðal annars að börnum sem þurfa aukinn stuðning vegna félagslegrar stöðu, uppruna eða tungumálakunnáttu. Aðstoðin getur falist í samtali, stuðningi við að hefja þátttöku og fjárhagslegri aðstoð vegna gjalda, búnaðar og ferða. Verkefnið Velkomin í hverfið þitt byggir einnig á samstarfi skóla, frístundastarfs og þjónustu við fjölskyldur. Með því að kynna nýjum fjölskyldum úrræði og möguleika á þátttöku má styðja við tengsl þeirra við nærumhverfið frá upphafi. Slík vinna getur lagt grunn að því að stuðningur sé aðgengilegur og fjölskyldur viti hvert þær geta leitað. Lýðheilsuvísar Lýðheilsuvísar Embættis landlæknis fyrir Reykjavík árið 2026 bæta við myndina. Þar kemur fram að 66,8% barna í 4. bekk gengu eða hjóluðu í skólann daginn sem spurt var, samanborið við 53,6% á landsvísu. Þá stunduðu 77,1% barna í 7. bekk íþróttir eða aðra rösklega hreyfingu að minnsta kosti þrisvar í viku, samanborið við 76% á landsvísu. Vísarnir sýna einnig að 89,3% nemenda í 8.–10. bekk upplifa þann tilfinningalega stuðning og hjálp sem þau þurfa frá fjölskyldu sinni. Jafnframt eru tækifæri til að efla daglegar heilsuvenjur: í 9. bekk uppfylla 23,4% viðmið lýðheilsuvísa um daglega hreyfingu samkvæmt ráðleggingum og 44,5% nemenda í 10. bekk borða morgunmat að minnsta kosti fjórum sinnum í viku. Lýðheilsuvísar 2026 – Reykjavíkurborg. Öruggar göngu- og hjólaleiðir, aðlaðandi leiksvæði og aðgengilegt frístundastarf geta stutt við áframhaldandi þátttöku. Í lýðheilsu- og forvarnarstarfi leggjum við einnig áherslu á daglega hreyfingu, reglulegan svefn, hollt mataræði og geðrækt. Þetta eru viðfangsefni sem heimili, skólar og frístundastarf geta unnið að saman. Skólinn er mikilvægur vettvangur fyrir bæði lýðheilsu og forvarnir. Í æskulýðsrannsókninni segja 87% nemenda í 6.–10. bekk að þeim líki vel eða þokkalega í skólanum, 90% að þeim líði vel í kennslustundum og 92% telja mikilvægt að leggja sig fram við námið. Þetta eru styrkleikar sem hægt er að byggja á við að efla skólasamfélag þar sem börn upplifa öryggi, áhuga og að þau tilheyri skólasamfélaginu. Tækifæri eru jafnframt til að styrkja tengsl við fullorðna. Í 6.–10. bekk segja 43% að í skólanum sé fullorðinn starfsmaður sem þeim finnist gott að tala við þegar þau hafa áhyggjur eða líður illa. Að gera stuðning sýnilegan og skapa fleiri tækifæri til traustra samskipta er skýrt viðfangsefni fyrir fyrsta stig þjónustu. Vinnum saman við að styðja börnin okkar Þegar þörf er á samþættingu þjónustu gegnir tengiliður farsældar mikilvægu hlutverki. Hann veitir upplýsingar, aðstoðar við að tryggja aðgang að frummati,skipuleggur og fylgir eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í samstarfi við barn og foreldra. Öll börn og foreldrar eiga að hafa aðgang að þessari þjónustu tengiliðar. Samhæfing forvarnarstarfs í hverfunum styður við starf þjónustuveitenda og tengiliða farsældar. Þegar skólar, foreldrar, frístundastarf og aðrir þjónustuveitendur vinna saman að skýrum markmiðum má nýta betur þau úrræði sem þegar eru til staðar og greina hvar stuðning vantar. Verkefnastjórar lýðheilsu, forvarna og félagsauðs halda utan um samstarf sem skapar aðstæður fyrir slíka vinnu. Niðurstöður rannsóknanna geta þannig nýst til að forgangsraða almennum forvörnum og heilsueflingu. Mat á stuðningi við einstakt barn þarf jafnframt að byggja á aðstæðum þess, þörfum og rödd barnsins sjálfs. Í Reykjavík er margt að byggja á Sterk tengsl og jöfn tækifæri til þátttöku þurfa stöðuga rækt og aðgengilegan stuðning. Virkt forvarnarstarf í hverfunum og samhæfing verkefnastjóra lýðheilsu, forvarna og félagsauðs eru hluti af þeirri vinnu. Með því að efla þetta starf getum við tengt lýðheilsumarkmið borgarinnar og farsældarþjónustu við daglegt líf barna og fjölskyldna. Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér. Þær þurfa fólk sem heldur utan um samstarfið og fylgir því eftir. Höfundar eru verkefnastjórar forvarna, lýðheilsu og félagsauðs hjá Reykjavíkurborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun