Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar 12. október 2026 12:16 Umræðan um bókun 35 hefur afhjúpað óþægilega forsendu sem talsmenn forgangsreglunnar virðast ekki vilja ræða upphátt. Hún er sú að þeir treysta Alþingi Íslands ekki til að setja lög í samræmi við EES‑rétt. Þeir treysta ekki lýðræðislega kjörnum fulltrúum þjóðarinnar til að innleiða reglur á þann hátt að tryggja réttindi Íslendinga. Í stað þess að treysta eigin löggjafa, eigin dómstólum og eigin stjórnskipun, treysta þeir regluverki sem er ekki sett af Íslendingum, ekki sniðið að íslenskum aðstæðum og ekki einu sinni stöðugt í túlkun. Þetta er kjarni málsins, og það er kominn tími til að segja það upphátt. EES‑réttur er mannanna verk, rétt eins og íslensk lög. Hann er settur af fólki, túlkaður af fólki og breytist með fólki. Þrátt fyrir það tala sumir eins og EES‑réttur sé óskeikull og óumbreytanlegur. Saga EFTA‑dómstólsins sýnir annað. ESA hefur ítrekað túlkað reglur rangt, of vítt eða í samræmi við ESB‑rétt sem á ekki við í EES‑kerfinu. EFTA dómstóllinn hefur margoft þurft að leiðrétta stofnunina. Þetta er ekki álitamál heldur staðreynd sem sést í fjölda mála. Þess vegna er varfærni ekki veikleiki heldur virðing fyrir íslenskri stjórnskipun. Alþingi hefur innleitt EES‑rétt í þrjá áratugi og gert það vel. Innleiðingarlögin eru yfirleitt nákvæm, oft gullhúðuð og stundum meira íþyngjandi en reglurnar sjálfar. Ágreiningsmál eru innan við tíu á þrjátíu árum og flest þeirra hafa verið leyst. Ef þetta er merki um óhæfi, þá er erfitt að sjá hvað telst hæfi. Þrátt fyrir þetta halda talsmenn bókunar 35 því fram að innleiðingarlög Alþingis séu svo ótrygg og ófullkomin að nauðsynlegt sé að binda Alþingi við forgangsreglu sem tryggir að EES‑regla ráði úrslitum nema Alþingi taki fram sérákvæði. Þetta er ekki réttarbót. Þetta er valdaframsal. Forgangsreglan breytir stöðu Alþingis. Í dag setur Alþingi einfaldlega lög. Með forgangsreglu þarf Alþingi að taka fram undantekningu til að víkja frá reglu sem á uppruna sinn utanlands. Þetta er grundvallarmunur á Alþingi sem óskoruðum löggjafa og Alþingi sem bundnum löggjafa. Þeir sem halda öðru fram eru annaðhvort að misskilja málið eða reyna að fegra það. Það er líka athyglisvert að þeir þingmenn sem mæla hvað harðast fyrir bókun 35 virðast ekki hafa mikla trú á eigin getu til lagasetningar. Þeir tala eins og innlend lagasetning sé ótrygg, ófær og ófullkomin, og að eina leiðin til að tryggja réttindi Íslendinga sé að binda Alþingi við regluverk sem kemur utan frá. Það er sérkennileg afstaða hjá fólki sem á að bera stoltið af íslenskri stjórnskipun, íslenskum dómstólum og íslenskum löggjafa. Ef þingmenn telja sig ekki hæfa til að setja lög í samræmi við EES, þá er spurningin einföld-hvers vegna eru þeir í löggjafarvaldinu? Það er líka athyglisvert að þeir sem berjast hvað harðast fyrir forgangsreglunni virðast ekki vilja beita vörnum í málinu sem ESA hefur nú höfðað gegn Íslandi. Ef innleiðing EES‑réttar hefur verið rétt í þrjá áratugi, hvers vegna vilja þeir ekki verja hana? Ef ágreiningsmál eru fá og flest leyst, hvers vegna vilja þeir að ný túlkun ESA verði látin gilda án þess að hún sé prófuð fyrir dómstólum? Ef Alþingi er hæft til að setja lög, hvers vegna vilja þeir binda það við regluverki sem kemur utan frá? Þetta eru spurningar sem enginn þeirra hefur svarað. Í staðinn er haldið fram að forgangsreglan sé “réttarbót“og að þeir sem vilja beita vörnum séu að berjast gegn réttindum. Það er rangt. Að beita vörnum er ekki varnarbarátta gegn réttindum heldur varnarbarátta fyrir réttaröryggi, fyrir stöðugleika og fyrir því að breytingar á 30 ára framkvæmd séu gerðar á grundvelli formlegrar niðurstöðu, ekki blindrar trúar á ESA. Í þessu samhengi er óhjákvæmilegt að nefna mótsögn sem blasir við. Í ræðum sínum erlendis hefur utanríkisráðherra talað um hugrekki þjóðarleiðtoga, um mikilvægi þess að standa fast gegn þrýstingi og verja eigin hagsmuni. En þegar kemur að hagsmunum Íslands sjálfs, þá er hún sú sem leggur fram frumvarp sem felur í sér að Ísland gefist upp áður en dómstóllinn hefur sagt sitt. Það er erfitt að sjá hvernig það samræmist hugrekki. Það líkist miklu frekar þeirri tegund af varnarleysi sem hún sjálf hefur gagnrýnt í öðrum löndum þ.e að láta erlenda stofnun segja sér hvað sé rétt, í stað þess að treysta eigin löggjafa og eigin dómstólum. Ef innleiðing EES‑réttar hefur verið rétt í þrjá áratugi, ef ágreiningsmál eru fá og flest leyst, og ef Alþingi er hæft til að setja lög í samræmi við EES, hvers vegna vill ráðherra þá ekki beita vörnum? Hvers vegna á ný túlkun ESA að verða látin gilda án þess að hún sé prófuð? Hvers vegna á Ísland að gefast upp áður en EFTA‑dómstóllinn hefur úrskurðað? Þetta er mótsögn sem ekki verður horft fram hjá. Það er ekki hugrekki að gefast upp. Það er ekki hugrekki að binda Alþingi við erlenda reglu. Það er ekki hugrekki að treysta ESA betur en íslenskum dómstólum. Hugrekki er að standa vörð um íslenska stjórnskipun, treysta eigin löggjafa og krefjast formlegrar niðurstöðu EFTA -dómstólsins áður en 30 ára framkvæmd er breytt Þess vegna á Ísland að beita fullum vörnum. Ekki til að veikja réttindi, heldur til að verja sjálfstæði löggjafarvaldsins og tryggja að breytingar á réttaruppbyggingu séu gerðar á grundvelli skýrra og óumdeildra forsendna. Það er ekki hugleysi. Það er ábyrgð og það er einmitt það sem þjóðarleiðtogar eiga að sýna. Höfundur er byggingafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun