Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar 10. október 2026 16:31 Í dag, 10. október er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn. Í ár er sjónum sérstaklega beint að mikilvægi þess að hlusta á raddir þeirra sem hafa reynslu af geðrænum áskorunum og nýta innsýn þeirra við þróun þjónustu, úrræða og stefnumótun á sviði geðheilbrigðismála. Í þróun vöru og þjónustu þykir sjálfsagt að hlusta á notendur þjónustunnar og þróa hana út frá endurgjöf þeirra. Sama hugsun á að sjálfsögðu við um geðheilbrigðisþjónustu en í gegnum tíðina hafa notendur bent á skort á samráði og að ekki sé tekið nægilegt tillit til skoðana þeirra og vilja. Krafturinn í reynslu fólks Á undanförnum árum hefur orðið jákvæð þróun í þessa átt og svokölluð batahugmyndafræði hefur fengið aukið vægi innan geðheilbrigðisþjónustu. Hún byggir meðal annars á valdeflingu, sjálfsákvörðun og því að fólk hafi meiri stjórn á eigin meðferð og þjónustu. Ein birtingarmynd þessarar nálgunar er aukin áhersla á jafningjastarf og að reynsla fólks sem hefur glímt við geðrænan vanda sé nýtt til stuðnings öðrum. Fólk með lifaða reynslu og grasrótarsamtök hafa lengi verið mikilvægir drifkraftar breytinga á þessu sviði, meðal annars með því að berjast fyrir auknum réttindum, valdeflingu og því að rödd notenda fái meira vægi. Hér á landi hafa ýmis samtök og úrræði byggst upp þar sem slík reynsla hefur verið í forgrunni, eins og Geðhjálp, Klúbburinn Geysir, Bataskólinn, Hlutverkasetur og Hugarafl. Ég hef sjálf starfað með jafningjum í Bataskólanum og orðið vitni að töfrunum sem geta skapast í hópum þegar jafningi deilir eigin reynslu á faglegan og uppbyggilegan hátt. Með því getur hann lyft hulunni af reynslu sem margir telja sig þurfa að fela. Geðrænum vanda fylgir því miður enn oft skömm og fólk getur upplifað að það þurfi að leyna einkennum sínum og erfiðleikum. Einkennin sjálf geta valdið nægri vanlíðan án þess að skömm og ótti við viðbrögð annarra bætist þar ofan á. Að mæta fólki með skilningi, stuðningi og samkennd getur létt á þeirri byrði og þar getur starf jafningja haft mikil áhrif. Gildi jafningjastuðnings á ekki síður við innan geðheilbrigðisþjónustunnar. Innlögn á geðdeild getur verið erfið reynsla meðal annars þar sem fólk upplifir stundum valdaójafnvægi og skilningsleysi frá heilbrigðisstarfsfólki. Þá getur skipt miklu máli að geta rætt við einstakling sem þekkir sambærilega reynslu af eigin raun, hefur sjálfur glímt við geðrænan vanda og jafnvel dvalið á geðdeild. Geðsvið Landspítala réð sinn fyrsta notendafulltrúa árið 2006 í kjölfar verkefnisins Notandi spyr notanda sem Hugarafl stóð fyrir. Á árunum 2017–2023 voru jafningjar ráðnir til starfa á geðdeildum Landspítala, í samfélagsgeðteymum og geðheilsuteymum heilsugæslunnar. Í dag starfa níu jafningjar á geðsviði Landspítala. Jafningjum í geðheilsuteymum heilsugæslunnar hefur hins vegar fækkað. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi fjármögnun stöðugilda svo jafningjar geti verið hluti af geðheilsuteymum um land allt. Aukin aðkoma fólks með reynslu af geðrænum áskorunum sést einnig í stefnumótun. Árið 2023 stofnaði heilbrigðisráðherra 17 manna geðráð sem hefur það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og stuðla að aðkomu helstu hagaðila að stefnumótun og þróun geðheilbrigðismála. Tæpur helmingur fulltrúa í ráðinu kemur úr röðum notenda, aðstandenda og notenda- eða félagasamtaka. Unnið gegn kerfislægum fordómum og mismunun Áherslan á aðkomu fólks með lifaða reynslu endurspeglast einnig í alþjóðlegu verkefni sem Ísland tekur þátt í. Embætti landlæknis tekur þátt í evrópska samstarfsverkefninu JA Prevent NCD, sem snýr að forvörnum gegn ósmitbærum sjúkdómum. Innan þess leiðir Ísland verkefni sem fjallar um kerfislæga fordóma og mismunun gagnvart fólki með geðrænan vanda. Að vinna gegn fordómum og mismunun er mikilvægt lýðheilsu- og forvarnarstarf. Fordómar geta haft neikvæð áhrif á líðan og lífsgæði og orðið til þess að fólk veigri sér við að leita aðstoðar. Vandinn getur þannig orðið meiri á meðan fólk frestar því að leita sér hjálpar. Í þessu Evrópska samstarfsverkefni er unnið að því að kortleggja hvernig og hvar kerfislægir fordómar og mismunun birtast í samfélaginu og hvaða leiðir eru líklegastar til að draga úr þeim. Þar er aðkoma fólks með lifaða reynslu mikilvæg. Mikilvæg skref hafa verið tekin á undanförnum árum í átt að aukinni þátttöku fólks með reynslu af geðrænum áskorunum í geðheilbrigðismálum, en enn er verk að vinna. Að hlusta er mikilvægt, en það er enn mikilvægara að það sem heyrist hafi áhrif. Vonir standa til þess að vinnan innan JA Prevent NCD geti lagt sitt af mörkum til þeirrar þróunar með því að sameina niðurstöður rannsókna, reynslu þátttökulanda og þekkingu fólks með lifaða reynslu við mótun raunhæfra leiða til að draga úr kerfislægum fordómum og mismunun. Þannig getum við stuðlað að samfélagi þar sem reynsla fólks fær ekki aðeins að heyrast heldur hefur raunveruleg áhrif á þær breytingar sem ráðist er í. Höfundur er verkefnastjóri geðræktar á lýðheilsusviði hjá Embætti landlæknis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun