Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar 12. október 2026 09:00 Það er merkilegt hvað sumir álitsgjafar eiga erfitt með að ræða stjórnmál án þess að gera lítið úr þeim sem eru þeim ósammála. Í stað þess að takast á við rök andstæðinganna er þeim lýst sem fýlupokum, tuðurseggjum, æsingamönnum og jafnvel fólki sem glímir við veruleikablekkingar. Nýlegur pistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur á DV um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands er ágætt dæmi um þetta. Í stað þess að ræða heimsóknina, samskipti Íslands og Bandaríkjanna eða afstöðu íslenskra stjórnmálamanna til Donalds Trumps er hún upptekin af því að gera lítið úr þeim sem hafa aðrar skoðanir en hún sjálf. Við fáum að vita að „fýlan lak“ af tilteknum einstaklingum, að „æsta hægri fólkið“ hafi brugðist illa við, að „tuðararnir“ hafi eitthvað á hornum sér og að „krónísk fýla valdalausa ysta hægrisins“ hafi gert vart við sig. Þetta er bara byrjunin. Síðar eru pólitískir andstæðingar sagðir hafa rifið hár sitt og klæði og „veinað ógurlega“. En hvað sögðu þessir einstaklingar eiginlega? Um það eða hvaða rök þeir færðu fram, ef einhver, og hvers vegna þau voru röng fá lesendur litlar upplýsingar. Í stað þess býður Kolbrún upp á lýsingar á ímynduðu tilfinningaástandi þeirra sem henni er illa við. Vissulega er auðveldara að afgreiða andstæðinga sem æsta tuðurseggi en að þurfa að takast á við það sem þeir segja, en það er ekki sérstaklega upplýsandi. Donald Trump er í pistlinum kallaður „dyntóttur, hégómlegur og ráðríkur.“ Þeir sem kjósa að eiga góð samskipti við hann eru sakaðir um að fara „hina aumkunarverðu smjaðursleið.” Óhjákvæmilega hlýtur maður að spyrja hvenær eðlileg diplómatísk samskipti verða að smjaðri? Er það smjaður þegar þjóðarleiðtogar leggja sig fram um að eiga góð samskipti við forseta Bandaríkjanna? Eða aðeins þegar viðkomandi forseti er Donald Trump? Auðvitað má gagnrýna Trump ákvarðanir hans og framkomu – sem og allra annarra leiðtoga, en gagnrýni verður ekki vandaðri við það að bæta við fleiri niðrandi lýsingarorðum. Það ætti ekki að þurfa að útskýra að fólk getur verið ósammála án þess að annar aðilinn sé annaðhvort heimskur, siðlaus eða haldinn einhverri undarlegri sálarmeinsemd. Kolbrún gengur enn lengra varðandi Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels: „Sá sem heldur því fram að Netanjahú sé sómamaður hlýtur að vera haldinn veruleikablekkingu á háu stigi.“ Hún gagnrýnir ekki aðeins Netanjahú eða ákvarðanir ríkisstjórnar hans, heldur einnig dómgreind allra þeirra sem kunna að hafa aðra skoðun á manninum – afgreiðir þá sem veruleikafirrta. Það er hægt að hafa áhyggjur af þjáningum óbreyttra borgara á Gaza og jafnframt að telja nauðsynlegt að ræða stríðið í samhengi við hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023, gíslatökurnar og þá öryggisógn sem Ísrael hefur staðið frammi fyrir frá stofnun ríkisins árið 1948. En fleira þarf að hafa í huga. Ísrael hefur flutt nærri tvær milljónir tonna af mannúðaraðstoð inn á Gaza frá upphafi stríðsins. Ísraelsher hefur jafnframt notað símtöl, textaskilaboð og dreifibréf til að vara óbreytta borgara við yfirvofandi árásum og hvetja þá til að yfirgefa hættusvæði. Að saka Ísrael um þjóðarmorð er sannarlega veruleikafirring. Skoðanapistlar eiga að vera beittir, ögrandi, fyndnir og jafnvel miskunnarlausir. En það er grundvallarmunur á beittum penna og beiskju, á röksemdafærslu og skætingi. Það þarf enga sérstaka vitsmunalega burði til að kalla pólitíska andstæðinga sína tuðurseggi, fýlupoka eða veruleikafirrta. Fyrirlitning er ekki sönnun höfundarins þess efnis að hann hafi rétt fyrir sér. Sá sem afgreiðir skoðanaágreining sem heimsku, illgirni eða veruleikafirringu er ekki að rökræða, heldur að lýsa því yfir að skoðanir annarra séu ekki einu sinni þess virði að þær séu teknar alvarlega. Fyrirlitning er ekki röksemd, né er hroki er vitsmunalegur yfirburður. Sá sem þarf að gera lítið úr öðrum til að upphefja eigin skoðanir hefur kannski ekki jafn sterk rök og hann heldur. Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar