Lífið

Inga Lind selur rauða ein­býlis­húsið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Inga Lind stundar tennis og golf af miklu kappi. Nú stefnir hún á að færa sig um set.
Inga Lind stundar tennis og golf af miklu kappi. Nú stefnir hún á að færa sig um set. Vísir/Vilhelm

Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg í miðbæ Reykjavíkur á sölu eftir tveggja ára dvöl í húsinu. Hún keypti húsið eftir sögulega sölu á einbýlishúsi við Mávanes í Garðabæ á 850 milljónir króna.

Fyrst var greint frá sölunni á vef Mbl en á fasteignavef Vísis er húsinu lýst sem afar fallegu og vel við höldnu. Það er rúmir 136 fermetrar með aukaíbúð og sérstæða 19 fermetra óskráða vinnustofu á lóðinni.

„Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum með afar smekklegum hætti og með virðingu fyrir aldri og anda hússins. Fallegur panill, loft- og gólflistar, rósettur í loftum og pólýhúðaðir pottjárnsofnar setja svip sinn á eignina. Lóðin er afgirt með sólríkum, hellulögðum bakgarði og fallegu, upphituðu Serralux-gróðurhúsi. Bílastæði með rafknúnu hliði er á lóð þar sem auðveldlega komast tveir bílar fyrir,“ segir í auglýsingunni.

Eftir að slitnaði upp úr hjónabandi Ingu og fjárfestsins Árna Haukssonar flutti Inga sig úr fyrrnefndu einbýli á Arnarnesinu og í húsið sjarmerandi á Barónsstíg. Inga fann svo ástina í örmum viðskiptamannsins Sigurðar Viðarssonar og má reglulega sjá þau njóta lífsins á samfélagsmiðlum.

Húsið er einkar sjarmerandi að utan.Eignamiðlun
Það er aldeilis hægt að slaka á í þessari fallegu stofu.Eignamiðlun
Gott að hafa gítar á kantinum til að grípa í hvort sem er á rólegum sunnudagsmorgni eða í föstudagspartýi.Eignamiðlun
Snyrtilegt baðherbergi í svörtu og hvítu.Eignamiðlun
Huggulegt borðstofuborð með sjónvarpi til að geta hámað í sig góðan mat og sjónvarpsseríur.Eignamiðlun
Sjarmerandi svefnherbergi á efri hæð.Eignamiðlun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.