Lífið samstarf

Smára­lind breytist í tíma­vél um helgina

Smáralind
„Það er því óhætt að segja að Smáralind sé í toppformi á 25 ára afmælinu sínu,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, sem heldur upp á stórafmælið á morgun laugardag.
„Það er því óhætt að segja að Smáralind sé í toppformi á 25 ára afmælinu sínu,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, sem heldur upp á stórafmælið á morgun laugardag.

Það verður sannkölluð nostalgíustemning í Smáralind um helgina þegar verslunarmiðstöðin fagnar 25 ára afmæli sínu. Klukkunni verður snúið aftur til ársins 2001 með tónlist, tísku, gömlum minningum og ýmsum skemmtilegum uppákomum ásamt því að flestar verslanir munu bjóða upp á vegleg afmælistilboð.

Hápunkturinn verður á laugardaginn þegar öllum verður boðið upp á afmælisköku klukkan tvö og um kvöldið þegar þrjár af skærustu poppstjörnum aldamótaáranna, Stebbi Hilmars, Jónsi úr Svörtum fötum og Svala Björgvins, stíga á svið í Garðinum mathöll.

Davíð Oddson, þá forsætisráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að Smáralind 2. júlí 1998.

Hér má finna nánari upplýsingar um dagskrá og tilboð helgarinnar.

„Það er svo margt sem er vinsælt í dag undir áhrifum frá aldamótunum. Það sem var „út“ er orðið „inn“ aftur,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, og brosir yfir því hvernig tískan og tónlistin virðast ganga í hringi. „Þetta gefur okkur tækifæri til að tengja saman tvær kynslóðir: þá sem muna þennan tíma og þá sem elska hann án þess að hafa upplifað hann. Þannig kviknaði hugmyndin að því að taka fólk aftur til ársins 2001 á 25 ára afmælinu.“

Tívolí á bílaplani Smáralindar.

Geisladiskar, plaköt og mjaðmagallabuxur

Gestir Smáralindar eiga því von á óvenjulegri ferð aftur í tímann um helgina. Tónlist frá aldamótaárunum mun hljóma um göngugötuna og sérstök uppstilling sýnir hvernig tískan frá árinu 2001 hefur snúið aftur í nýrri mynd.

Þá verður sett upp sérstakt og myndavænt „2001-herbergi“ þar sem gestir geta rifjað upp hvernig unglingaherbergin litu út fyrir aldarfjórðungi. Þar verða meðal annars geisladiskar, plaköt og ýmsir hlutir sem margir muna eflaust vel eftir. „Í herberginu verður að finna það helsta sem einkenndi herbergi ungs fólks á þessum tíma. Stíllinn, geisladiskarnir og plakötin eiga örugglega eftir að vekja upp ljúfar minningar hjá mörgum,“ segir Sandra.

Söngleikurinn Fame var settur upp í Smáralind sumarið 2004. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fór með danshlutverk í sýningunni og Jónsi í Svörtum fötum lék í henni.

Á göngugötunni verður einnig hægt að skoða vinsælar vörur frá þessum tíma og á skjám verða sýnd eftirminnileg augnablik úr sögu Smáralindar.

Og auðvitað verður haldið upp á afmælið með hefðbundnum hætti líka. Gestum verður boðið upp á afmælisköku og kaffi á laugardaginn kl. 14 og fjölmargar verslanir verða með sérstök afmælistilboð alla helgina.

Aftur tvítug á laugardagskvöldið

Einn af hápunktum afmælishátíðarinnar verður á laugardagskvöldið þegar Stebbi Hilmars, Jónsi úr Svörtum fötum og Svala Björgvins rifja upp tónlistina sem ómaði úr útvarpstækjum og geislaspilurum landsmanna í kringum aldamótin. „Þau þrjú munu flytja nokkur af vinsælustu lögum sínum frá þessum tíma og mögulega fá einhverjir aðrir þekktir smellir að fljóta með,“ segir Sandra.

Garðurinn mathöll opnaði í lok síðasta árs og hefur fengið afar góðar viðtökur.

Hún segir markmiðið að skapa notalega og skemmtilega laugardagskvöldsstemningu þar sem fólk geti sameinað góðan mat, tónlist og félagsskap. „Við viljum að fólk komi saman, fái sér góðan mat og drykk og syngi jafnvel með lögunum sem það kann og tengir við skemmtilegar minningar. Það má alveg búast við að einhverjir verði aftur tvítugir í anda þetta kvöld!“

Brúðkaupssýningin Já var haldin á árunum 2002-2005 í Vetrargarði Smáralindar.

Smáralind í toppformi eftir 25 ár

En þótt horft verði til fortíðar um helgina hefur Smáralind sjálf tekið miklum breytingum frá opnuninni árið 2001. Sandra segir hlutverk verslunarmiðstöðva hafa þróast töluvert á þessum aldarfjórðungi.

„Fólk kemur hingað til að versla og fá góða þjónustu og kann að meta það að hafa fjölbreytt úrval á einum stað og þægilegt aðgengi. En heimsóknin er líka orðin meira en verslunarferð. Smáralind er áfangastaður þar sem verslun, veitingar og afþreying tvinnast saman og fólk kemur til að hittast og eiga góðar stundir.“

Smáralind er í toppformi á 25 ára afmælinu.

Ein stærsta breytingin varð í lok síðasta árs þegar Garðurinn mathöll opnaði með 13 veitingastöðum. Sandra segir þá viðbót hafa gefið fólki enn fleiri ástæður til að heimsækja Smáralind og dvelja þar lengur.

„Það er því óhætt að segja að Smáralind sé í toppformi á 25 ára afmælinu sínu. Aðsókn hefur aukist mikið á þessu ári og það er afar ánægjulegt að sjá hversu vel gestir hafa tekið þeim breytingum sem við höfum unnið að.“

Sandra horfir björtum augum til framtíðarinnar. Hún segir fólk enn leggja áherslu á gott vöruúrval og þjónustu en heimsókn í verslunarmiðstöð þurfi líka að bjóða upp á ánægjulega upplifun. Þar nefnir hún Garðinn sem gott dæmi, auk Menningarmiðstöðvar Kópavogs sem opnar á næsta ári. „Markmiðið er að fólk fari héðan ánægt, bæði með það sem það fékk og stundina sem það átti.“

Miðnæturopnunin 1. október var sú stærsta sem haldin hefur verið í Smáralind. Yfir 8 milljónir söfnuðust til Bleiku slaufunnar á þeim viðburði.

Saknar Snake en ekki mjaðmagallabuxnanna

En ef Sandra mætti sjálf endurvekja eitthvað frá árinu 2001, hvað yrði þá fyrir valinu? Kannski mjaðmagallabuxurnar, snákamynstrið eða einhver gleymdur tískusmellur?

„Mikið af tísku þessa tíma hefur nú þegar snúið aftur, svo sem snáka- og sebramynstur og mjaðmagallabuxur, þótt ég hafi sjálf lokið því tímabili,“ segir hún létt í bragði.

Það sem hún saknar helst frá þessum tíma er þó ekki fatnaður eða tónlist heldur aðeins einfaldara líf. „Það var notalegt að fara út með síma sem var bara sími, gat hringt, sent SMS og í mesta lagi boðið upp á eina umferð af Snake. Engin endalaus skilaboð eða skroll, bara maður sjálfur og það sem var að gerast í kringum mann.“

Hún hlær þó að tilhugsuninni um að hverfa alveg aftur til fortíðar. „Ég viðurkenni þó að ég væri ekki reiðubúin að fórna myndavélinni í símanum mínum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.