Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 18:07 August Hanning er áttræður. Hann er sakaður um að hafa njósnað fyrir tvö erlend ríki en ekki er ljóst hvaða ríki um er að ræða. AP/Michael Kappeler, DPA Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar BND var handtekinn í morgun en hann er grunaður um njósnir og landráð. August Hanning er sakaður um að hafa verið í samskiptum við leyniþjónustur að minnsta kosti tveggja annarra ríkja og deila með þeim leynilegum upplýsingum í gegnum öryggisráðgjafafyrirtæki sitt.
Hanning stýrði BND, sem er sú leyniþjónusta Þýskalands sem starfar á erlendri grundu, frá 1998 til 2005. Eftir það varð hann ráðherra en undanfarin ár hefur hann stýrt öryggisráðgjafafyrirtæki en auk hans var fyrrverandi starfsmannastjóri hans hjá BND einnig handtekinn. Sá heitir Manfred D og er sakaður um að hafa deilt um tvö þúsund leynilegum skjölum með Hanning í skiptum fyrir peninga yfir rúmlega tólf ára tímabil, samkvæmt frétt Politico. Hann var áfram starfsmannastjóri BND þar til í mars á þessu ári. Þessar leynilegu upplýsingar er Hanning sakaður um að hafa notað í greiningu fyrir erlenda leyniþjónustu. Ekki er þó vitað með vissu að greiningin hafi ratað á leiðarenda. Þá er hann sagður hafa átt í nánum samskiptum við starfsmann leyniþjónustu annars ríkis og deilt með honum leynilegum upplýsingum í gegnum árin. Í yfirlýsingu frá saksóknurum segir að Hanning sé grunaður um njósnir, landráð, söfnunun ríkisleyndarmála og tilraun til landráðs. Manfred D er sakaður um aðstoð við landráð og njósnir. Fundu skjöl við rannsókn vegna barnaráns Mál Hanning tengist frægu þýsku sakamáli þar sem þekkt athafnakona sem heitir Christina Block, sem er þekktust fyrir að erfa steikhúsakeðjuna Block House, rændi tveimur yngstu börnum sínum af föður þeirra árið 2023. Þá áttu þau í deilum um forræði yfir börnunum. Rúmu ári áður en börnunum var rænt munu menn á vegum hennar hafa reynt að ræna börnunum en án árangurs. Rannsakendur komust á snoðir um að Hanning hefði mögulega tengst þeirri mannránstilraun. Yfirvöld eru sögð hafa komist á snoðir um meintar njósnir hans þegar gerð var húsleit hjá honum í fyrra en þá fundust leynileg skjöl í gagnageymslu á heimili hans. Nýjustu skjölin munu hafa verið frá júní 2022. Njósnaði ekki fyrir Rússa Ekki hefur verið gefið upp um hvaða ríki er að ræða en samkvæmt frétt DW hafa þýskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sínum þar í landi að Rússland sé ekki annað ríkjanna. BND á sér langa sögu sambærilegra hneykslismála en í gegnum árin hafa margir starfsmenn leyniþjónustunnar verið sakaðir um njósnir. Ástandið hefur á köflum verið svo slæmt að forsvarsmenn annarra leyniþjónusta hafa veigrað sér við því að deila upplýsingum með Þjóðverjum. Árið 2023 var háttsettur starfsmaður BND ákærður fyrir að deila leynilegum upplýsingum um stríðið í Úkraínu með rússneskum útsendurum. Á sjöunda áratug síðustu aldar kom í ljós að yfirmaður sérstakrar gagnnjósnadeildar gegn Sovétríkjunum stundaði njósnir fyrir rússnesku leyniþjónustuna KGB. Martin Jäger, núverandi yfirmaður BND, varaði á dögunum þýska þingmenn við því að ríkið stæði frammi fyrir töluverðri ógn frá Rússlandi í formi fjölþáttaógna og er unnið að nýju frumvarpi um auknar valdheimildir leyniþjónustunnar. Mál Hanning þykir því koma upp á sérstaklega viðkvæmum tíma fyrir stofnunina. Jäger lýsti því yfir í dag að þetta tiltekna mál tengdist á engan hátt áherslum hans varðandi framtíð BND og ætti ekki að hafa áhrif á þær.
Þýskaland Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira