Bíði og bíði eftir Bjarna Agnar Már Másson og Telma Tómasson skrifa 6. október 2026 16:32 „Við teljum að við höfum ekki endalausan tíma,“ segir Halla Gunnarsdóttir. Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Frestur til uppsagnar rennur út síðdegis á fimmtudaginn en í morgun fundaði félagið með Samtökum atvinnulífsins. „Það er aldeilis að renna upp örgurstund og við erum á krossgötum þess að það fari allt í átök og erfiðleika í vetur eða að fólk setjist niður og finni einhverja lausn sem virkar,“ segir Halla Gunnarsóttir, formaður VR, en hún var til viðtals í útvarpsfréttum Bylgjunnar klukkan 16. Halla segist hafa lagt fram tillögur að lausnum á fundi með fulltrúum SA í morgun. „Og ég hafði væntingar um það að við myndum hittast fljótlega aftur eftir hádegi og við myndum loka okkur inni þar til við værum komin með niðurstöðu,“ heldur hún áfram. Halla tekur fram að fulltrúar VR, Landssambands íslensra verzlunarmanna auk fagfélaganna hafi beðið frá því klukkan 13 eftir því að fulltrúar SA komi til samtals. Fulltrúar verkalýðsfélaganna og SA hafi þó skipst á einhverjum skilaboðum. „En það virðist vera eitthvað langt á milli húsa í Borgartúninu og þau eru allavega enn ekki komin,“ segir Halla. „Við teljum að við höfum ekki endalausan tíma,“ bætir hún við. Nú eru tveir sólarhringar til stefnu. Hvað ætlið þið að sitja lengi að bíða? „Við förum kannski heim og leggjum okkur í nótt ef á þarf að halda, en við viljum vera þarna þar til viðunandi lausn er fundin fyrir alla aðila og við getum sameinast um þetta verkefni: að reyna hérna að ná tökum á efnahagsmálum og ná verðbólgunni niður.“ Ekki náðist í Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, við vinnslu fréttar.
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Stéttarfélög Vinnumarkaður Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira