Erlent

Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec

Bjarki Sigurðsson skrifar
Paul St-Pierre Plamondon er leiðtogi Quebecbúaflokksins og verður að öllum líkindum næsti fylkisstjóri.
Paul St-Pierre Plamondon er leiðtogi Quebecbúaflokksins og verður að öllum líkindum næsti fylkisstjóri. AP/Graham Hughes

Quebecbúaflokkurinn (Parti Québécois) vann fylkiskosningarnar í Quebec-fylki í Kanada í gær. Flokkurinn vill að fylkið lýsi yfir sjálfstæði frá Kanada og hefur leiðtogi flokksins, sem verður jafnframt að öllum líkindum næsti fylkisstjóri Quebec, lofað atkvæðagreiðslu um málið á næstunni.

Íbúar hafa tvisvar áður greitt atkvæði um sjálfstæði en hugmyndin var felld í bæði skiptin, árin 1980 og 1995. Í grein breska ríkisútvarpsins segir að einungis þrjátíu prósent íbúa vilji sjálfstæði svo það sé ólíklegt að það verði samþykkt. 

Sigur Quebecbúaflokksins sýni hins vegar að Mark Carney forsætisráðherra þurfi að leita leiða til að leysa þau vandamál sem íbúar svæðisins telja sig glíma við. 

Kjósendur Quebecbúaflokksins eru flestir á móti fjölda innflytjenda á svæðinu og því að Kanada sé undir bresku krúnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×