Innlent

Bein út­sending: Marco Rubio heim­sækir Ís­land

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín og Marco Rubio tylltu sér í Höfða.
Þorgerður Katrín og Marco Rubio tylltu sér í Höfða. Vísir/Anton Brink

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á Íslandi og fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Fylgst var með heimsókn hans hér á Vísi.

Rubio lenti á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi og tóku Þorgerður Katrín og Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á móti honum þar. 

Lengri dagskrá er í dag. Rubio heimsótti Höfða og fékk þar kynningu á húsinu sögufræga en heldur síðan í Safnahúsið. Þar á eftir fundaði hann með Þorgerði og Kristrúnu en til stóð að ræða sameiginleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf.

Rubio mætti síðan á blaðamannafund þar sem íslenskir og erlendir fjölmiðlar fengu að spyrja hann nokkurra spurninga. Smári Jökull Jónsson, fréttamaður Vísis og Bylgjunnar, fylgdi Rubio eftir í beinni útsendingu.

Sömuleiðis er hægt að lesa allt um heimsókn Rubio í vaktinni hér fyrir neðan.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×