Erlent

Yfir fimm þúsund hand­teknir í frönsku stúdentamótmælunum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Það kom til átaka milli lögreglunnar og mótmælenda í Saint-Denis, sem er rétt fyrir utan París.
Það kom til átaka milli lögreglunnar og mótmælenda í Saint-Denis, sem er rétt fyrir utan París. EPA

Hundruðum menntaskóla víðs vegar í Frakklandi verður lokað á mánudag vegna mótmæla menntaskólanema sem snúist hafa í óeirðir. Að minnsta kosti fimm þúsund hafa verið handteknir, flestir unglingar. 

Édourard Geffray, menntamálaráðherra Frakka, segir að á milli fjögur og fimm hundruð menntaskólum verði lokað á morgun vegna mótmælanna. Nú þegar hafa 24 skólar verið rændir eða brenndir.

Lögreglan notaði meðal annars táragas.EPA

Mótmælin hófust í september og leituðu menntaskólanemar út á götur vegna slæmra námsskilyrða á við yfirfullar kennslustofur, skort á kennurum og skólabygginga í niðurníðslu.

„Við viljum að stjórnvöld hlusti á okkur. Við viljum frekar standa hérna og mótmæla heldur en að læra í þessum slæmu skilyrðum. Þetta er eina leiðin til að láta heyra í okkur,“ sagði ónefndur nemandi í viðtali við The Guardian.

Foeldrar og kennarar tóku einnig þátt í mótmælunum.EPA

Fyrst um sinn voru mótmælin heldur friðsamleg. Nemendur stóðu fyrir utan skólann og komu í veg fyrir að hægt væri að komast inn til að hefja kennslu. Einhverjir kennarar og foreldrar nemendanna hafa einnig tekið þátt í mótmælunum. 

Þau urðu síðan æ ofbeldisfyllri og komið hefur til átaka á milli mótmælenda og lögreglunnar. Kveikt hefur verið í ruslatunnum og blysum. Nemendurnir hafa sakað lögregluna um að nota of mikið ofbeldi og sært nemendur með táragasi. 

Nokkrir nemendur hafa særst í mótmælunum og sagði Geffry að 65 kennarar hefðu sömuleiðis særst. Eitt atvik er til rannsóknar eftir að fjórtán ára drengur í Val d'Oise hlaut alvarlega áverka á munni og kjálka eftir að lögregla er sögð hafa barið hann og skotið hann með einhvers konar gúmmíkúluvopni. Lögmaður drengsins sagði að drengurinn hefði haldið að hann væri „að fara að deyja“.

Meðal þeirra sem urðu fyrir táragasi var Aniella Lóa, íslensk stúlka búsett í París. 


Tengdar fréttir

Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda

Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka.

Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi

Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×