Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Freyja Þórisdóttir skrifar 3. október 2026 09:47 Vél Flydubai flugfélagsins á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv. Vísir/AP Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar er haft eftir ríkissaksóknara Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem segir rannsóknir hafa leitt í ljós að aðstoðarflugmaðurinn hafi reynt að fremja hryðjuverk. Beitti neyðaröxi Líkt og fyrr segir veittist aðstoðarflugmaðurinn, hinn ómanski Hammam al-Hammami, að flugstjóranum vopnaður neyðaröxi. Þær eru venjulega geymdar í flugstjórnarklefanum til notkunar í neyðartilvikum eins og flugslysum, er fram kemur í frétt Reuters. Rannsóknir standa enn yfir til að ákvarða möguleg málsatvik, ástæður þess að Hammami ákvað að fremja ódæðið og hvers kyns tengsl hans, auk þess að skoða efnisleg og stafræn sönnunargögn, er einnig haft eftir ríkissaksóknaranum. Sameinuðu arabísku furstadæmin leiða rannsóknina en flugfélagið er í eigu ríkisstjórnar Dúbaí. Yfirbugaður af farþegum Greint var frá því fyrr í vikunni að Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefði sagt að farþegi vélarinnar hefði ásamt einum áhafnarmeðlimi brotist inn í flugstjórnarklefann og náð að yfirbuga annan flugmanninn sem þá hafði stungið flugstjórann með hníf. Reyndi flugmaðurinn einnig að skemma stjórnkerfi vélarinnar. Annar úr áhöfninni kom þá inn í klefann og náði stjórn á vélinni en samkvæmt frétt Reuters var sá einnig starfsmaður Flydubai og lenti flugvélinni á Tabuk-flugvelli í norðvesturhluta Sádi-Arabíu, þar sem aðstoðarflugmaðurinn var handtekinn. Netanjahú hefur einnig greint frá því að Ísrael væri að kanna hvort aðstoðarflugmaðurinn hefði starfað undir stjórn einhvers og varaði við því að hver sem ætti hlut að máli myndi gjalda þess „dýru verði“.
Ísrael Sameinuðu arabísku furstadæmin Sádi-Arabía Flug Óman Hryðjuverkastarfsemi Tengdar fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu. 30. september 2026 09:28 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Sjá meira
Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu. 30. september 2026 09:28