Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. október 2026 14:22 Eiður Smári fór í hárígræðslu hjá tyrkneska skurðlækninum Dr. Cinik og birtist í gær í auglýsingu læknisins á samfélagsmiðlum. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnuþjálfari, sparkspekingur og fyrrverandi landsliðsmaður, kemur fyrir í nýrri auglýsingu tyrkneska skurðlæknisins Dr. Cinik sem sérhæfir sig í hárígræðslum. Sýnt er frá því þegar Eiður fór í hárígræðslu í klíník læknisins í Istanbúl í fyrra auk þess sem hár hans er sýnt fyrir og eftir hárígræðsluna.
Auglýsingin birtist á samfélagsmiðlum Dr. Cinik í gær og sýnir frá hárígræðsluferli Eiðs. „Ég er Eiður Guðjohnsen og ég er hér í Istanbúl, [í] klíník Dr. Ciniks á leið í aðgerð í dag. Hlakka til hennar. Dálítið stressaður, verð ég að segja. Aldrei gert þetta áður, vonandi verðum við öll ánægð með útkomuna,“ segir Eiður í byrjun myndbandsins en þar má sjá hvernig búið er að teikna nýju hárlínuna með pennastrikum. View this post on Instagram A post shared by Dr. Emrah Çinik (@dr.emrahcinik) Þvínæst má sjá Eið ræða við skurðlækninn og þá skoða gamlar myndir af Eiði úr landsleik með Íslandi gegn Þýskalandi 6. september 2003. „Bestu tímarnir,“ segir læknirinn og þeir hlæja saman. „Fáum þá aftur,“ bætir Eiður við. Síðan spilast myndir af Eiði sem teknar voru í ágúst síðastliðnum fyrir umfjöllun Sýnar um ensku úrvalsdeildina þar sem sjá má hárið eftir ígræðsluna. Eiður Smári er meðal sparkspekinga í umfjöllun Sýnar um enska boltann.Sýn Sport Við auglýsinguna stendur: „Það er okkur heiður að bjóða velkomna fótboltagoðsögnina Eið Guðjohnsen fyrir hárígræðsluferðalag hans.“ Á samfélagsmiðlum klíníkurinnar má svo sjá sambærileg myndbönd frá fyrrverandi fótboltaleikmönnum á borð við Rio Ferdinand og Rivaldo. Á síðustu tveimur árum hefur það færst í aukana hjá karlmönnum að fara í hárígræðslur og hefur Tyrkland verið vinsæll áfangastaður. Íslenskir karlmenn hafa ferðast þangað í miklum mæli sem varð til þess að það var tekið fyrir í síðasta Áramótaskaupi við mikla kátínu áhorfenda. Umboðsmaðurinn Einar Bárðarson hefur verið fyrirferðarmikill í umræðunni um hárígræðslur, fór sjálfur í eina slíka og heldur úti þjónustu þar sem hann hjálpar öðrum körlum að komast til Tyrklands í aðgerðir.
Tyrkland Hár og förðun Lýtalækningar Tengdar fréttir Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Svavar Elliði Svavarsson, kennari og tónlistarmaður, fór til Tyrklands í hárígræðslu fyrir um mánuði síðan. 14. maí 2025 10:30 Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira
Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Svavar Elliði Svavarsson, kennari og tónlistarmaður, fór til Tyrklands í hárígræðslu fyrir um mánuði síðan. 14. maí 2025 10:30