Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Freyja Þórisdóttir skrifar 30. september 2026 21:03 Hættumat Veðurstofunnar byggir á ýmsum gögnum sem stöðugt eru uppfærð. Í hættumatinu sem kom út í dag var stuðst við ný gögn sem tengjast sprunguviðgerðum innan Grindavíkur sem eru langt komnar. Björn Steinbekk Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið.
Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands um stöðuna á Reykjanesskaga . Þar segir að landris haldi hægt og rólega áfram við Svartsengi en að jarðskjálftavirkni sé áfram lítil. Á undanförnum þremur mánuðum hafi landris mælst um það bil fjórir sentimetrar og verið nokkuð stöðugt á tímabilinu. Það bendi til þess að þrýstingur sé enn að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi. Þá er greint frá því að jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík sé áfram lítil. Á síðustu tveimur vikum hafi aðeins fáir skjálftar mælst í kvikuganginum og flestir þeirra verið mjög smáir. Einnig hafi verið lítil virkni annars staðar á Reykjanesskaga undanfarna daga og vikur. Líklegasta sviðsmyndin á meðan landris heldur áfram er að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. „Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni,“ segir á vefnum. Hættumat hafi verið uppfært með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík en breytingin lækki reiknað heildarhættustig fyrir Grindavík úr 4,14 í 4,02. Hættuflokkurinn breytist þó ekki og heildarhættan sé áfram metin töluverð (appelsínugult). Sprunguviðgerðirnar minnka líkur á hættu vegna „jarðfalls ofan í sprungu“ innan bæjarmarkanna, en hafa engin áhrif á mat á hættu vegna mögulegra sprunguhreyfinga í næsta atburði.
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira