Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 29. september 2026 06:33 Andy Burnham er forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands kallaði saman ráðherra sína til fundar í gær vegna alvarlegs atviks nærri bandarískri herstöð í landinu í fyrradag, þar sem fimm menn voru handteknir grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk og fyrir að brjóta lög um meðferð sprengiefna.
Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum atburðum. Fram hefur komið að hinir handteknu voru allir breskir ríkisborgarar, á aldrinum 23 til 25 ára. Þeim var sleppt gegn tryggingu í gær en áfram er grannt fylgst með þeim. Margt er óljóst um atvikið og óvitað hver eða hverjir standa á bak við það, eftir því sem fram kemur í frétt á breska ríkismiðlinum BBC. Þegar í upphafi vaknaði grunur um afskipti stjórnvalda í Íran, þar sem bandaríski flugherinn hefur um árabil notað herstöðina og í sumar til aðgerða í Íran, en írönsk stjórnvöld hafa vísað því alfarið á bug, fordæmt harðlega og segja það tilhæfulausar getgátur. Fullyrðir að erlendir aðilar komi að Síðdegis í gær fullyrti hins vegar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox News að erlendur aðili hefði komið við sögu í atburðum liðinnar helgi, án þess þó að leggja fram gögn því til sönnunar. „Það sem hefði getað gerst í Bretlandi um helgina er mjög alvarlegt,“ sagði Rubio í viðtali við Fox News í gærkvöldi. Rubio þakkaði breskum yfirvöldum fyrir hvernig þau hefðu tekist á við málið en sagði jafnframt að margir væru órólegir yfir því að sumir þeirra sem verið er að rannsaka hafi verið látnir lausir gegn tryggingu. Donald Trump sagði fréttamönnum í Hvíta húsinu í gær að hann hefði ekki látið mennina lausa gegn tryggingu. „Við vitum allt um þá. Við hefðum ekki látið þá lausa.“ Engin sprengja í bílnum Mennirnir fimm, allir breskir ríkisborgarar frá London á þrítugsaldri, voru handteknir snemma á sunnudagsmorgun eftir að lögreglu barst ábending frá bóndakonu á svæðinu um þrjá hvíta sendibíla sem ekið var í átt að RAF Fairford-herstöðinni þar sem bandarískar sprengjuflugvélar hafa flogið í hernaðarverkefni gegn Íran. Þeir voru handteknir vegna gruns um brot sem tengjast sprengiefnum og að hafa undirbúið hryðjuverk. Fram kemur í frétt Guardian að í fyrstu hafi rannsókn bent til þess að sprengiefni væri að finna í bílnum en eftir að mennirnir voru látnir lausir kom í ljós að ekkert sprengiefni hafði fundist. Rannsaka öll möguleg tengsl Laurence Taylor, yfirmaður bresku hryðjuverkalögreglunnar og aðstoðarlögreglustjóri, sagði að lausn mannanna gegn tryggingu þýddi ekki að rannsókninni væri lokið og að þeir sættu „ströngum skilyrðum“. „Ég veit að mikill áhugi er á því hvort núverandi staða í alþjóðamálum hafi áhrif á þetta atvik. Hjá hryðjuverkalögreglunni vinnum við innan þessa samhengis á hverjum degi og á þessu stigi höldum við öllum möguleikum opnum í rannsókninni… En ég fullvissa ykkur um að við skoðum málið frá öllum mögulegum sjónarhornum. Þar á meðal hvort um starfsemi sé að ræða á vegum milliliða eða einstaklinga sem vinna, vitandi eða óafvitandi, fyrir hönd erlends ríkis.“
Bretland Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Heimili rýmd nærri herflugstöð Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur. 27. september 2026 09:16 B-2 sprengjuþotur í oddaflugi yfir Íslandi með norskum herþotum Heræfingin er sögð til marks um aukna spennu í samskiptum NATO og Rússa á Norðurslóðum. Þetta nýjasta flug B-2 undirstriki hernaðarlegt mikilvægi Íslands. 19. mars 2020 23:31 Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira
Heimili rýmd nærri herflugstöð Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur. 27. september 2026 09:16
B-2 sprengjuþotur í oddaflugi yfir Íslandi með norskum herþotum Heræfingin er sögð til marks um aukna spennu í samskiptum NATO og Rússa á Norðurslóðum. Þetta nýjasta flug B-2 undirstriki hernaðarlegt mikilvægi Íslands. 19. mars 2020 23:31
Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14