Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Freyja Þórisdóttir skrifar 28. september 2026 23:37 Jonathan McKinsey var fjörutíu ára þegar hann lést. Skjaskot/Linkedin Yfirmaður leikjaupplifunar hjá bandaríska fyrirtækinu The New York Times var skotinn til bana í Kaliforníu en tengdaforeldrar hans eru grunaðir um morðið. Þau voru handtekin nærri vettvangi morðsins örfáum mínútum eftir að vitni heyrðu skothvelli og sáu mann falla til jarðar.
Hinn fjörutíu ára gamli Jonathan McKinsey fannst látinn á bílastæði í borginni Dublin sem er tæpa sextíu kílómetra austan við San Fransisco í Kaliforníu en hann hafði verið skotinn oft. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Shouyong Zhang og Shili Chen, tengdaforeldrar hans, sem eru bæði á áttræðisaldri, eiga yfir höfði sér margvíslegar ákærur, þar á meðal fyrir morð af ásetningi, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Vitni hafi lýst því fyrir staðarmiðlum að þau hafi heyrt fjölda skothvella með stuttu millibili og svo séð mann falla til jarðar. „Ég sá manninn falla til jarðar, hann var allur úti í blóði á höfðinu og búknum,“ er haft eftir Assad Razawi, íbúa á svæðinu, en dóttir hans hafi einnig bætt við að faðir hennar hefði séð hjónin, Zhang og Chen, „ganga saman og síðan rólega í burtu frá skotárásinni“. Þá hefur verið greint frá því að hjónin hafi verið handtekin nokkrum mínútum síðar af lögreglumanni sem átti leið hjá. Þau hafi verið nærri svæðinu í nokkra stund eftir árásina. Staðarmiðlar hafa greint frá því að McKinsey hafi staðið í erfiðum skilnaðardeilum en eiginkona hans hafi farið fram á nálgunarbann vegna heimilisofbeldis gegn honum fyrir tæpu ári. Þau hafi verið gift frá því árið 2011.
Lögreglumál Erlend sakamál Dómsmál Bandaríkin Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira