Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð Lovísa Arnardóttir skrifar 15. september 2026 11:46 Gunnar Þór Geirsson er formaður Félags íslenskra heimilislækna. Vísir/Einar Stjórn Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) lýsir yfir sárum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Í ályktun minnir stjórnin ríkisstjórnina á gefin loforð um að allir landsmenn eigi að hafa fastan heimilislækni.
Í tilkynningu frá félaginu segir að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár sé sú fjáraukning sem kynnt er til heilsugæslunnar hvergi nærri nóg til að vinna á uppsöfnuðum fjárhagsvanda. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 56 milljarða framlagi til heilsugæslunnar. Í frumvarpinu má sjá að framlag til heilsugæslu var um 58 milljarðar árið 2025, 51 milljarður í ár og verði svo um 56 milljarðar á næsta ári. Í frumvarpinu kemur fram að framlagið hækki um 2,7 milljarða frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum. Í umfjöllun fjárlagafrumvarps kemur fram að framlög til heilbrigðismála hækki um 7,2 milljarða milli ára og að þar af sé rekstur styrktur um 5,3 milljarða vegna öldrunar þjóðar. Í frumvarpinu segir að þetta fjármagn dreifist á milli sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu, heilsugæslu og lyfja. Færri krónur fyrir hvern einstakling Í tilkynningu FÍH segir að miðað við fólksfjölgun og launaþróun blasi það þó við að færri krónur séu til umráða fyrir hvern einstakling sem aftur valdi skertri þjónustu. „Gangi frumvarpið óbreytt eftir í þessum efnum mun það gera núverandi ástand, sem er með öllu óviðunandi, enn verra,“ segir í tilkynningunni. Eigi nú þegar í erfiðleikum Þar er bent á að nú þegar eigi heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir í erfiðleikum með daglegan rekstur. Sérnám heimilislækna sé ekki fjármagnað og að nú berist fréttir af því að Landspítali hafi sagt upp stöðum sérnámslækna í heimilislækningum vegna fjárskorts. „Vandséð er hvernig áframhaldandi vanfjármögnun heilsugæslunnar eigi að leiða til þess að fleiri Íslendingum gefist kostur á því að hafa fastan heimilislækni,“ segir í tilkynningunni. Félagið minnir því ríkisstjórnina af þessu tilefni á fyrirheit sem gefin voru í stefnuyfirlýsingu hennar – lið 14, að allir landsmenn hafi „fastan heimilislækni“, eins og það er orðað. „Með hliðsjón af fjárlagafrumvarpi ársins 2027 er augljóst að ríkisstjórnin sýnir lítinn sem engan vilja til að ná þessu markmiði fyrir fólkið í landinu,“ segir að lokum.
Heilbrigðismál Landspítalinn Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira