Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. september 2026 10:49 Birkitréð hafði stækkað töluvert á síðustu árum og breitt úr sér út á götu. Núna er hins vegar búið að fella það og fjarlægja allan gróður við stólpana. Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson syrgir „skemmtilegasta og þrjóskasta tréð í Vesturbænum,“ lítið birkitré sem festi rætur við Hagatorg fyrir meira en átta árum og var fellt nýverið. Hann furðar sig á þeirri ákvörðun borgaryfirvalda að fella tré sem hafi glatt fólk og haft hraðalækkandi áhrif á umferðina. Ekki eru allir sammála honum. „
Skemmtilegasta og þrjóskasta tréð í Vesturbænum var þessi birkihrísla sem neitaði að gefast upp og gladdi okkur sem göngum þarna um síðustu tíu árin,“ skrifar Gísli Marteinn í færslu sem hann birti á Instagram í gær. Hundurinn Tinni með birkihríslunni fyrir nokkrum árum en þau eru bæði horfin á braut í dag. „Af einhverjum ástæðum hefur yfirvöldum í Reykjavík allt í einu þótt bráðnauðsynlegt að láta hana hverfa. Hefur ekkert með umferðaröryggi að gera, hún virkaði sem hraðalækkandi aðgerð, ef eitthvað er,“ skrifar hann jafnframt. „Af hverju má borgin ekki vera skemmtileg og skrýtin?“ spyr hann að lokum en með færslunni er tólf myndir af trénu, teknar yfir átta ára tímabil. „Bláa höndin er ekki með græna fingur“ Þó nokkrir skrifa ummæli við færslu Gísla, margir syrgja tréð með honum og aðrir skammast í borgaryfirvöldum. „Bláa höndin er ekki með græna fingur,“ skrifar ljósmyndarinn Jói Kjartans við færsluna og vísar í fræga myndlíkingu Hallgríms Helgasonar um Sjálfstæðisflokkinn og völd hans. Vala Ágústa, kennari og eiginkona Gísla, með trénu. „Allt sem er gaman er bannað,“ skrifar sagnfræðingurinn og skákmaðurinn Gauti Páll Jónsson. „Glatað og því miður týpískt,“ skrifar leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir. „Hrein borg, fögur torg,“ skrifar Brynhildur Bolladóttir, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Rauða krossins, og bætir við einum grátkalli. „Akkúrat. Burt með allan villtan gróður,“ svarar Gísli henni. Grafíski hönnuðurinn Sveinbjörn Hermann Pálsson veltir því upp hvort það eigi ekki bara að planta nýju tré á sama stað, kannski grenitré eða jafnvel kaktusi. „Sjarminn var einmitt að plantan kom sér fyrir þarna sjálf og neitaði að gefast upp. Fékk enga hjálp!“ svarar Gísli honum. Gísli Marteinn hefur lýst keppninni undanfarin ár með hléum.Vísir/Vilhelm Tréð hafi stefnt börnum í hættu Ekki eru þó allir sammála Gísla um tréð, veru þess við torgið og fagna því jafnvel að það sé á bak og burt. „Ég er hrikalega ánægður að sjá hana hverfa. Hún gerði líf mitt mjög erfitt,“ skrifar tónlistarmaðurinn Gylfi Freeland Sigurðsson. „Þarna er ég ekki sammála Gísli minn. Þetta var að stefna börnum hættu, lágvaxin og að stíga sín fyrstu skref á leiðinni í skólann. Trjágróður á ekki heima við gangbrautir. Átti bara eftir að halda áfram að stækka,“ skrifar hársnyrtirinn Hallveig Sigurðardóttir. Birkitréð hafði breitt töluvert úr sér á síðustu árum.
Reykjavík Tré Borgarstjórn Tímamót Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Sjá meira