Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Freyja Þórisdóttir skrifar 30. ágúst 2026 17:27 Maður sem keyrði um á mótorhjóli á varðsvæði lögreglustöðvar 2 þar til lögregla hafði afskipti af honum var með flest, ef ekki allt, í ólagi. Vísir/Vilhelm Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar frá því klukkan sjö í morgun en á tímabilinu barst tilkynning um að handalögmál hafi brotist út í garði í miðbæ Hafnarfjarðar lögreglunni á stöð 2. Þegar laganna verðir voru mættir á vettvang hafi annar maðurinn hlaupið á brott, virt fyrirmæli lögreglu að vettugi og veitt mikla mótspyrnu við handtöku sem hafi leitt til þess að beita þurfti piparúða. Hann var fluttur á lögreglustöð og gisti þar í fangageymslu. Kom eitt og annað í ljós Á sama varðsvæði voru höfð afskipti af manni á mótorhjóli sem undu upp á sig ef svo má að orði komast. Fyrst kom í ljós að hann væri undir áhrifum fíkniefna eða áfengis og akandi án þess að vera með ökuréttindi. Þá reyndist bifhjólið vera ótryggt og kom á daginn að maðurinn væri með þýfi í fórum sínum en hann gerði því næst „heiðarlega tilraun til þess að stinga af“. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Fjöldi ökumanna um allan bæ var stöðvaður í akstri og þar á meðal voru þrír stöðvaðir vegna hraðaksturs. Á varðsvæði lögreglustöðvar 3, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt, varð umferðaróhapp þar sem ökumaður mótorhjóls féll af hjólinu og slasaðist. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til athugunar og aðhlynningar.
Hafnarfjörður Lögreglumál Umferð Umferðaröryggi Kópavogur Reykjavík Garðabær Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira