Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2026 23:59 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur reynt að takmarka getu fólks til að greiða atkvæði utan kjörfundar. AP/Mark Schiefelbein Hæstiréttur Bandaríkjanna féllst ekki á kröfu fjölda ríkja um að stöðva framgang forsetatilskipunar Donalds Trumps sem er ætlað að takmarka utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Óljóst er að hve miklu leyti hægt verður að framfylgja tilskipuninni fyrir komandi þingkosningar sem fram fara í byrjun nóvember en hún hefur áhrif á getu fólks til að senda atkvæði sitt með pósti. Á sama tíma er niðurstaða Hæstaréttar sögð opna á möguleika annarra aðila til að hefja dómsmál sem gætu tafið gildistöku tilskipunar forsetans. Nú þegar er búið að höfða önnur svipuð mál. Lítill tími er til að gera meiriháttar breytingar á fyrirkomulagi póstkosninga þar sem sum ríki byrja fljótlega að senda út kjörseðla til kjósenda. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Tilskipun Trumps var undirrituð í mars en þar er boðað að ríkisstjórnin búi til lista yfir kjörgenga einstaklinga og póstþjónustu Bandaríkjanna skipað að afhenda utankjörfundaratkvæði einungis til fólks á þeim listum. Nýjar kröfur sem gefnar voru út á föstudag myndu banna póstþjónustunni að senda utankjörfundaratkvæði frá ríkjum sem fylgja ekki tilskipun Trumps. Þýði ekki að allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu leyfilegar Meirihluti Hæstaréttar sem samanstendur af íhaldssömum dómurum tók ekki afstöðu til þess hvort tilskipun Trumps væri lögmæt en úrskurðaði að ríkin sem höfðuðu málið hefðu ekki lagalegan rétt til að láta reyna á lögmæti hennar. Málið var höfðað af fulltrúum Demókrataflokksins í 23 ríkjum og Washington D.C. „Afstaða dómstólsins í þessu máli þýðir ekki að allar aðgerðir sem stjórnvöld grípa til við framkvæmd tilskipunarinnar verði endilega löglegar. Tíminn mun leiða það í ljós,“ skrifaði meirihlutinn í niðurstöðu sinni. Þrír frjálslyndir dómarar lýstu opinberlega yfir andstöðu sinni við meirihlutaálitið. Letitia James, dómsmálaráðherra New York-ríkis, gaf til kynna að frekari málatilbúnaður væri í vændum. Hún kallaði ákvörðunina „sársaukafullt áfall“ en hét því að þetta yrði „ekki síðasta orðið.“ Einungis fyrsta lota af mörgum Tilskipun Hæstaréttar gerir ríkisstjórninni kleift að hefja aðgerðir til að takmarka utankjörfundaratkvæðagreiðslu en hún gæti einnig leitt til fjölda málaferla sem gætu stöðvað framgöngu hennar á ný. Nú eru aðeins tíu dagar í að fyrstu utankjörfundaratkvæðaseðlarnir verða sendir út í Norður-Karólínu. Derek Muller, lagaprófessor við Notre Dame-háskóla, lýsir þessu sem fyrstu lotu í löngum leik í samtali við AP-fréttaveituna. Trump hefur lengi barist gegn utankjörfundaratkvæðagreiðslu og haldið því fram að hún bjóði upp á stórfelld svik, þrátt fyrir að gögn sýni hið gagnstæða og hann hafi sjálfur nýtt sér þessa aðferð.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stjórnvöld vestanhafs hafa farið fram á að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógildi dóm alríkisdómstóls, sem aftur ógilti forsetatilskipun um takmarkanir á utankjörfundaratkvæðagreiðslum. 28. júlí 2026 10:44 Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Einn helsti skoðanakannanasérfræðingur Bandaríkjanna telur 84 prósent líkur á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins í nóvember og 56,8 prósent líkur á því að þeir nái einnig yfirráðum í öldungadeildinni. 22. ágúst 2026 07:30 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira
Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stjórnvöld vestanhafs hafa farið fram á að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógildi dóm alríkisdómstóls, sem aftur ógilti forsetatilskipun um takmarkanir á utankjörfundaratkvæðagreiðslum. 28. júlí 2026 10:44
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Einn helsti skoðanakannanasérfræðingur Bandaríkjanna telur 84 prósent líkur á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins í nóvember og 56,8 prósent líkur á því að þeir nái einnig yfirráðum í öldungadeildinni. 22. ágúst 2026 07:30