Lífið

Fyrsta kvenna­lands­liðið í kotru býður á opna æfingu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kvennalandslið Kotrusambands Íslands f.h. Gyða Björg Sigurðardóttir, Kolbrún Þóra Löve, Þura Stína, Frederikke Bang. Á myndina vantar Kareni Ósk Hafliðadóttur sem er búsett í Danmörku.
Kvennalandslið Kotrusambands Íslands f.h. Gyða Björg Sigurðardóttir, Kolbrún Þóra Löve, Þura Stína, Frederikke Bang. Á myndina vantar Kareni Ósk Hafliðadóttur sem er búsett í Danmörku. Laufey Ósk

Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina.

Kotrusamband Íslands sendir í fyrsta sinn kvennalið til keppni fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í kotru, WBGF World Championships, sem fram fer í London 24.–30. ágúst. Alls senda 28 þjóðir landslið til keppni og þar af senda 16 þeirra kvennalið. Í tilkynningu kemur fram að íslenska landsliðið skipi ellefu spilarar sem keppa í opnum flokki og kvennaflokki, þar af fimm konur sem mynda fyrsta kvennalandslið Íslands á heimsmeistaramóti.

Gyða Björg Sigurðardóttir, landsliðskona í kotru, segir liðið halda út á sunnudag og keppni hefjist á mánudag. Hún segir fjáröflunina helst fyrir mótsgjaldinu, flugi og gistingu. Hún segir ánægjulegt að fyrsta íslenska kvennaliðið taki þátt í ár. Liðið hafi undirbúið sig á æfingum, keppnum og rýnt í spilið.

„Nýgræðingar eins og ég eiga margt eftir ólært en þeir sem eru fremstir í okkar hópi eru þvílíkir gúrúar, það er ótrúlegt hversu mikið er hægt að fara á dýptina. Það er eiginlega eins og í skák, með smá heppni,“ segir hún en ólíkt skák er spilið spilað með teningum.

Ekki lengur bara strákaspil

Hún segir spilið oft hafa verið spilað á bar og hafi í gegnum tíðina verið „strákaspil“ en það sé að breytast. Hún hvetur fólk til að koma á Kaffi Dal síðdegis í dag og prófa með landsliðinu. Á viðburðinum verður kennsla fyrir byrjendur. 

Reyndir spilarar eru sérstaklega hvattir til að mæta með sín eigin borð og taka léttan leik við landsliðskonurnar og aðra gesti. Frjáls framlög eru velkomin og renna óskipt til að styrkja ferð kvennalandsliðsins. Kotrusambandið leitar jafnframt bakhjarla til að gera keppnisferðina mögulega. Nánar um viðburðinn og styrktarleiðir hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.