Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 08:24 Boxarinn Vladimir Klitschko og Panettiere á viðburði árið 2013. Vísir/Getty Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar.
Panettiere lést á sunnudag, ekki er vitað um dánarorsök að svo stöddu en ekki er grunur um að andlát hennar hafi borið að með grunsamlegum hætti. Kaya, dóttir þeirra, er ellefu ára gömul en hefur frá þriggja ára aldri búið með föður sínum í Úkraínu, þaðan sem hann er. Panettiere afsalaði sér forsjá yfir henni á meðan hún glímdi við fíkn og fæðingarþunglyndi. Tókst á við dekkri hliðar Hollywood „Fjölskyldan er að ganga í gegnum mikið áfall og mikla sorg,“ segir Klitschko í færslu á Instagram í gær. „Hún byggði upp ótrúlegan feril með gríðarlegum hæfileikum, en þurfti um leið að takast á við dekkri hliðar mjög krefjandi starfsgreinar. Ekkert mun eyða stundunum sem við áttum saman eða staðnum sem hún átti í lífi okkar,” sagði hann og lofaði að við Kayu myndi hann ávallt tala um móður hennar af virðingu og sjá til þess að hún muni eftir manneskjunni sem hún var. „Ég votta foreldrum Hayden, vinum hennar og aðdáendum, sem einnig syrgja í dag, mína dýpstu samúð. Ungt og hæfileikaríkt fólk eins og Hayden ætti ekki að yfirgefa þennan heim svo snemma. Ég bið alla vinsamlegast um að virða tilfinningar fjölskyldu okkar og friðhelgi einkalífsins á þessum ótrúlega erfiðu tímum. Í bili er þetta allt sem ég vil segja,” sagði hann í færslunni sem má sjá að neðan en í henni deildi hann mynd af þeim þremur saman. View this post on Instagram A post shared by Klitschko (@klitschko) Í frétt Daily Mail um andlát hennar kemur fram að Panettiere og Klitschko hafi fyrst hist á bókarkynningu árið 2009 og byrjað að hittast. Þau hafi svo hætt saman en byrjað aftur saman tveimur árum síðar. Þau hafi verið búin að trúlofa sig árið 2013 þegar hún fæddi dóttur þeirra, Kayu. Árið 2018 var tilkynnt að þau væru hætt saman og síðar sama ár var greint frá því að Panettiere hefði afsalað sér forræði og dóttir þeirra flutt til Úkraínu. Panettiere tók þessa ákvörðun eftir að hafa upplifað gríðarlegt fæðingarþunglyndi sem leiddi til þess að hún leitaði í vímuefni. Hún leitaði sér að lokum aðstoðar og fór í meðferð. Ekki ákvörðun sem hún tók af léttuð Panettiere ræddi þessa ákvörðun sína nokkuð opinskátt í nokkrum viðtölum í sumar og í sjálfsævisögu sinni sem kom út fyrr á árinu, This is Me: A Reckoning. Í síðasta viðtali sínu í maí ræddi hún við Dear Momé um val sitt og sagði: „Þetta var ekki ákvörðun sem ég tók af léttúð, né var það ákvörðun sem ég vildi einu sinni taka. Ég var að ganga í gegnum mjög krefjandi tíma í lífi mínu.“ Þá sagði hún við Jay Shetty í hlaðvarpi hans, On Purpose, í maí: „Ég var sú sem leitaði eftir því, sem sagði: „Ég þarf sárlega á hjálp að halda. Ég veit að þetta mun líta hræðilega út, en ég þarf það. Ég get ekki lifað svona lengur.“ Sú hugmynd að einhver myndi halda að ég myndi bara gefa frá mér barnið mitt og vera sátt við það er átakanleg. Það gæti ekki verið fjarri sannleikanum,“ sagði hún. Í spjalli sínu við Dear Momé sagði Panettiere um dóttur sína: „Ég elska dóttur mína og er svo stolt af ungu konunni sem hún er að verða. Ég tala við hana allan tímann og mér finnst ég vera svo tengd henni. Hún er eins og lítil útgáfa af mér.“ Ekki sanngjarnt að flytja hana aftur frá Úkraínu Þegar hún ræddi um möguleikann á að fá dóttur sína aftur til sín fullyrti Hayden að hún myndi ekki vilja taka hana frá „ótrúlegu“ lífi hennar í Úkraínu. Hún sagði: „Þegar ég loksins náði heilsu fannst mér það hefði verið ósanngjarnt af mér, og eigingjarnt, að reyna að slíta hana úr þessu lífi sem hún hafði verið að skapa sér.“ Panettiere hóf leiklistarferil sinn sem ungt barn, kom fram í sápuóperum og varð svo þekktari í kjölfar hlutverks í Remember The Titans frá árinu 2000 með Denzel Washington, og sem rödd Dot í Pixar-myndinni A Bug's Life frá 1998. Panettiere varð síðar fræg fyrir að leika klappstýruna Claire Bennet í ofurhetjudramanu Heroes áður en hún lék kántrísöngkonuna Juliette Barnes í sex þáttaröðum af Nashville. Hún hlaut tvær Golden Globe-tilnefningar fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki í þáttunum. Meðal kvikmynda sem Panettiere hefur leikið í eru Bring It On: All Or Nothing frá 2006, Raising Helen og Scream 4 og Scream VI sem Kirby Reed.
Hollywood Börn og uppeldi Fíkn Úkraína Bandaríkin Andlát Hayden Panettiere Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira