Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Birgir Olgeirsson skrifar 13. ágúst 2026 18:31 Íslendingar greiða atkvæði 29. ágúst um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vilhelm Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka.
Í nýjustu könnuninni segjast 52,2 prósent þeirra sem taka afstöðu ætla að segja já við því að Ísland hefji að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. 47,8 prósent ætla að segja nei. Munurinn á fylkingunum er innan skekkjumarka. Alls tóku 1.047 svarendur afstöðu. Já sögðu 546 en nei 501. Í könnun sem gerð var í lok júlí mældist Já-hliðin með 53 prósent og Nei-hliðin með 47. Forskotið var þá sex prósentustig. Í könnun Maskínu í júní mældist Já-hliðin með 53,1 prósent meðal þeirra sem tóku afstöðu en Nei-hliðin með 46,9 prósent. Frá júní hefur Já því lækkað um 0,9 prósentustig og Nei hækkað um 0,9 stig. Við það hefur bilið milli fylkinganna þrengst um 1,8 stig, úr 6,2 stigum í 4,4. Þessi breyting er innan skekkjumarka kannananna. Hlutfall þeirra sem taka ekki afstöðu mælist lægra Í nýju könnuninni taka 13,1 prósent allra svarenda ekki afstöðu. Tíu prósent segjast ekki vita hvernig þau myndu kjósa og 3,1 prósent vilja ekki svara. Í júní tóku 16,1 prósent ekki afstöðu og í júlí var hlutfallið 17,3 prósent. Hlutfallið mælist því þremur prósentustigum lægra nú en í júní. Skýr munur eftir búsetu og menntun Reykvíkingar eru hlynntastir því að hefja viðræðurnar að nýju. Rúmlega 61 prósent þeirra sem taka afstöðu í Reykjavík ætla að segja já. Í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur mælist Já-hliðin með tæp 53 prósent. Nei-hliðin er með meirihluta á öllum landsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins. Andstaðan mælist mest á Austurlandi, þar sem tæp 63 prósent ætla að segja nei. Rúmlega 60 prósent háskólamenntaðra ætla að segja já. Á meðal þeirra sem hafa grunnskólapróf ætla tæp 57 prósent að segja nei og tæp 52 prósent þeirra sem hafa framhalds- eða iðnmenntun. Könnunin var gerð dagana 7. til 11. ágúst og svöruðu 1.205 manns. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Skoðanakannanir Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira