Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Valur Páll Eiríksson skrifar 14. ágúst 2026 09:01 David Winnie nýtur þess vel að horfa á sóknarleik KR en er stressaður yfir varnarleiknum. Vísir/Sigurjón Skotinn David Winnie, fyrrverandi varnarmaður KR, er hér á landi í sumarfríi. Hann horfði á sigur KR á Fram í síðasta leik í Bestu deildinni og fylgist iðulega vel með gengi liðsins.
Winnie lék með KR í kringum aldamótin og var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins á sínu fyrsta ári, 1998. Í kjölfarið vann hann tvo Íslandsmeistaratitla og bikartitil 1999 og 2000 sem leikmaður KR og þjálfaði liðið stuttlega á erfiðu tímabili 2001. Hann á íslenska eiginkonu og kemur reglulega hingað til lands og hefur fylgst vel með KR frá brottför hans um aldamót. Klippa: Winnie ræðir varnarleik KR KR gengur vel þessi dægrin og situr í öðru sæti Bestu deildarinnar, sex stigum frá toppnum, en hefur aftur á móti fengið á sig 39 mörk í 18 leikjum, enda sóknarleikurinn í fyrirrúmi í Vesturbænum. Winnie lék sem miðvörður á sínum ferli en hvernig heldur hann að honum myndi líða í miðri vörn KR-liðsins eins og það spilar í dag? „Ég ætla ekki að segja Óskari hvernig á að spila leikinn og það er virkilega ánægjulegt að horfa á sóknarleik þeirra. Lið hans munu alltaf skora mörk. En varnarlega fékk ég hjartaáfall í hvert sinn sem Fram var með boltann,“ segir Winnie sem horfði á 5-2 sigur KR á Fram í síðustu umferð. „Það er orðatiltæki sem segir að góðir framherjar vinni fyrir þig leiki en góður varnarleikur vinni fyrir þig deildir. Það sannast ávallt sem satt,“ segir Winnie. En Óskar virðist vera að reyna að afsanna það, ekki satt? „Ég er viss um að þetta muni smella. Ef við berum þetta saman við síðustu leiktíð þar sem félagið rétt slapp við fall, þá er þetta dagur og nótt, í samanburði. Þeir gætu enn unnið deildina. En í versta falli fer KR vonandi í Evrópukeppni, sem er mikil bót frá því í fyrra. Vonandi getur Óskar svo byggt ofan á það,“ „Hann veit það sjálfur að fram á við er KR frábært og skorandi mörk en til baka, getum við þétt varnarleikinn? Ég þarf ekki að segja honum það, hann veit það sjálfur.“ Ummæli Winnie má sjá í spilaranum. Nánar verður rætt við Skotann í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
KR Besta deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira