Leik lokið: Víkingur-Thun 3-2 | Víkingar fengu færin en sigur var ekki nóg Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 19:22 Valdimar Þór Ingimundarson fagnar hér sigurmarki sínu í Víkinni í kvöld. Vísir/Anton Víkingar duttu úr Evrópudeildinni í kvöld þrátt fyrir 3-2 sigur á svissnesku meisturunum í Thun. Evrópuævintýrið lifir þó og næst á dagskrá er umspil Sambandsdeildarinnar. Thun vann fyrri leikinn 3-0 og þar með einvígið 5-3 samanlagt. Víkingar þurftu kraftaverk í Víkinni og veik von varð enn veikari eftir að Svisslendingarnir skoruðu snemma. Thun komst tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum en þeir Gylfi Sigurðsson og Stígur Diljan Þórðarson jöfnuðu metin. Víkingar hafa unnið marga Evrópuleiki í Víkinni í sumar og Valdimar Þór Ingimundarson sá til þess að það breyttist ekki með því að skora sigurmarkið. Víkingar fengu þó mun fleiri færi til að skora fleiri mörk og setja meiri spennu í leikinn en tókst ekki að setja alvöru pressu á svissneska liðið. Víkingar mæta Borac Banja Luka frá Bosníu eða ML Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi í umspilinu. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Evrópudeild UEFA Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn