Leik lokið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Þorsteinn Hjálmsson skrifar 13. ágúst 2026 19:50 Allison Grace Lowrey skoraði tvö mörk fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld en hún hefur verið ómetanleg fyrir Eyjaliðið í sumar. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Ævintýrasumar nýliðanna úr Vestmannaeyjum heldur áfram. Eyjakonur tóku þriðja sætið af Stjörnunni með 3-2 sigri í leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta í Vestmannaeyjum í kvöld. Allison Grace Lowrey skoraði tvö mörk og Ágústa María Valtýsdóttir eitt en Murielle Tiernan minnkaði muninn í 2-1 í fyrri hálfleik og Fanney Lísa Jóhannesdóttir setti spennu í leikinn með því að minnka muninn í 3-2 í þeim seinni. Eyjakonur skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum í fyrri hálfleiknum og komust í 2-0 en eftir það voru Stjörnukonur alltaf að elta. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild kvenna Íslenski boltinn ÍBV Stjarnan