Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2026 09:45 Verkalýðsforkólfarnir kenna ríkisstjórn, sveitarstjórnum, Seðlabanka og atvinnurekendum um þráláta verðbólgu sem ógnar forsendum kjarasamninga. Vísir/Vilhelm Formenn sex stéttarfélaga vara við því að aukið atvinnuleysi vegna hávaxtastefnu Seðlabankans skapi kreppuverðbólgu sem geti orðið erfitt að vinda ofan af. Þeir hóta því að segja upp kjarasamningum ef stjórnvöld og atvinnurekendur axli ekki ábyrgð á stöðunni.
Óttast hefur verið um afdrif kjarasamninga um nokkurt skeið vegna þrálátrar verðbólgu. Formenn stéttarfélaganna sex sem eru í forsvari fyrir um fjörutíu prósent launafólks, slá því föstu í aðsendri grein á Vísi í dag að forsendur samninganna bresti þegar vísitala neysluverðs verður birt 27. ágúst. Þeir segja verkalýðshreyfinguna hafa kallað eftir aðgerðum og viðbrögðum frá bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum mánuðum saman en án árangurs. Stærri fyrirtæki hafi ekki staðið við fyrirheit um að halda aftur af verðhækkunum, sveitarfélög hafi hækkað gjaldskrár úr hófi fram og aðgerðaleysi hafi ríkt í húsnæðismálum. „Hávaxtastefna Seðlabankans hefur enn fremur verið sem olía á eld og í stað þess að ná niður verðbólgu veldur hún nú auknu atvinnuleysi, samhliða því að setja allar byrðarnar af erfiðu efnahagsumhverfi á herðar skuldara og leigjenda. Þessi vítahringur er smám saman að skapa kreppuverðbólgu, sem getur verið erfitt að vinda ofan af,“ skrifa verkalýðsforkólfarnir. Axli stjórnvöld og atvinnurekendur enga ábyrgð á stöðunni sé þeim nauðugur einn kostur að segja upp kjarasamningum og fara fram á leiðréttingu launa til þess að halda í við verðbólgu og vexti. „Núgildandi kjarasamningar voru gerðir á grundvelli loforða sem áttu að lækka verðbólgu og vexti. Þau loforð hafa verið þverbrotin og kjarasamningar munu ekki halda á grundvelli sambærilegra loforða. Nú þarf fugl í hendi, ekki í skógi,“ skrifa þau Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Jakob Tryggvason, formaður RSÍ, Andri Reyr Haraldsson, formaður FÍR, Eiður Stefánsson, formaður LÍV, Gunnar Sigurðsson, formaður VM, og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS.
Kjaramál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira