Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar 10. ágúst 2026 12:01 Menntamálaráðuneytið birti í sumar yfirlit yfir dreifingu lokaeinkunna í grunnskólum. Myndin sem þar blasir við er sannarlega umhugsunarverð en kemur ekki á óvart. Í sumum skólum fær enginn nemandi A í lokaeinkunn, en í öðrum fá hátt í sex af hverjum tíu A eða hæstu einkunn. Ráðuneytið dregur þá ályktun að slíkur munur snúist fremur um ólíka einkunnagjöf en ólíka færni barnanna og bendir á að þar með sé hætta á að tækifæri barna ráðist af búsetu fremur en getu. Hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra erum við sammála þeirri ályktun sem ráðuneytið dregur af tölunum en horfum á þetta út frá einni spurningu öðrum fremur: Hvernig eiga foreldrar að standa undir þeirri ábyrgð sem lög um grunnskóla fela þeim, þegar einkunnir barnanna mæla ekki það sama frá einum skóla til annars? Lög um grunnskóla eru afdráttarlaus um hlutverk foreldra. Samkvæmt 19. gr. bera foreldrar ábyrgð á námi barna sinna og ber að fylgjast með framvindu þess í samvinnu við börnin og kennara þeirra. Í 18. gr. er foreldrum tryggður réttur til upplýsinga um skólastarfið og stöðu barnsins. Löggjafinn ætlast sem sagt til þess að foreldrar séu vakandi, upplýstir og styðjandi þátttakendur í skólagöngu barna sinna. En ábyrgð verður ekki rækt án áreiðanlegra upplýsinga. Á meðan foreldri getur ekki treyst því að einkunn lýsi raunverulegri stöðu barnsins, hvað það hefur á valdi sínu og hvað þarf að styrkja er kippt undan þeim grunni sem lögin gera ráð fyrir. Þegar sama einkunn þýðir ólíka hluti eftir skólum breytist einkunnablaðið úr leiðarvísi í ágiskun. Það eru börnin sem tapa mestu. Nemandi þarf að vita hvar hann stendur, foreldrar þurfa að geta gripið inn í í tæka tíð, og kennarar þurfa að geta brugðist við áður en lítið bakslag verður að stórum vanda. Ósambærilegar einkunnir grafa auk þess undan jafnræði milli barna eftir hverfum og landshlutum, meðal annars þegar kemur að inntöku í framhaldsskóla. Nemanda er heldur enginn greiði gerður, komist hann áfram á forsendum sem standast ekki, hann mætir þá hreinlega kröfum sem hann var ekki búinn undir, með aukinni hættu á brottfalli. Ég hef aldrei hitt foreldri sem ekki vill það besta fyrir barnið sitt. Í nýlegri skýrslu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um starfsumhverfi í grunnskólum kemur fram að yfir helmingur kennara sem svara telur samskipti við foreldra valda sér miklu eða mjög miklu álagi í starfi. Margir viðmælendur telja að samskipti við foreldra hafi aukist til muna og taki meiri tíma en áður, einnig má sjá það í skýrslunni að einkunnir og túlkun þeirra er meðal þessara samskipta sem átt er við. Maður getur því ekki annað en velt því fyrir sér hver möguleg lausn sé. Þegar einkunnagjöfin virðist orðin mjög fljótandi og foreldrar treysta henni ekki myndast þessi grundvöllur til að rökræða einkunnirnar. Þegar A á einum stað þýðir ekki það sama og A á öðrum stað. Væri ekki rétt að taka þessa ágiskun út úr þessu mati og samræma einkunnagjöfina með samræmdum prófum í öllum árgöngum grunnskólans? Það væri þá ekki þessi grundvöllur til að rökræða einkunnirnar, þær lægju fyrir, myndu auka traust foreldra á einkunnunum, álag vegna samskipta kennara við foreldra um túlkun einkunna ætti að minnka og foreldrar fá þannig stöðugar og áreiðanlegar upplýsingar reglulega um skólagöngu barna sinna, og geta þar meðaxlað sína ábyrgð sem þeir sannarlega bera samkvæmt lögum. Þetta teljum við hjá Heimili og skóla að réttast væri að stefna að. Nú hefur Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra stigið skref í þessa átt og boðað breytingar á námsmati í grunnskólum landsins. Einkunnir verða birtar í tölum í stað bókstafa og tekur gildi vorið 2027 í lokamati fyrir 10. bekk. Í kjölfarið eða vorið 2028 ná breytingarnar til 4. og 7. bekkjar ásamt því að aðalnámskrá verður endurskoðuð með sérstaka áherslu á skýrari miðlæg viðmið um þá leikni og hæfni sem nemendur eiga að hafa náð á tilteknum skólastigum. Þetta eru sannarlega góð tíðindi og við hjá Heimili og skóla fögnum þessum aðgerðum ráðherra. Þetta er stórt skref í rétta átt og vonandi ná markmið þessara breytinga fram að ganga ”að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt” Það er virkilega ánægjulegt að þessi mál séu að þróast í rétta átt. Kópavogur hefur þegar boðað að samræmdar mælingar verði skylda í öllum skólum bæjarins fyrir 4.-10. bekk. Núna hefur nýr meirihluti Reykjavíkur gengið lengra og boðar samræmt námsmat í öllum árgöngum grunnskólans og ætlar að hefja samtal við ríkið um samræmt lokapróf úr grunnskólum borgarinnar. Þessu ber að fagna. Heimili og skóli stendur með foreldrum og börnum og eru reiðubúin til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld og skólasamfélagið um námsmat sem foreldrar geta treyst í þágu allra barna, hvar sem þau búa. Höfundur er faðir þriggja barna á leik- og grunnskóla aldri og formaður stjórnar Heimili og skóla – Landsamtaka foreldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar