Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar 13. október 2026 16:00 Það er ótrúlega mikilvægt að við þekkjum fólkið okkar og vitum hvað því liggur á hjarta. Það á ekki síst við um unga fólkið og að fullorðna fólkið, sem ber ábyrgð á því, sýni því áhuga og þori að spyrja hvað það sé að gera. Í sumar starfaði ég ásamt 12 öðrum ungmennum við Jafningjafræðslu Hins hússins. Jafningjafræðslan er forvarnar- og fræðslustarf sem hefur verið starfrækt í 30 ár af Hinu húsinu, miðstöð ungs, fólks á vegum Reykjavíkurborgar. Við heimsóttum unglinga í 9. og 10. bekk í Vinnuskóla Reykjavíkur, fórum í leiki og ræddum við þau um alls konar málefni sem snerta líf þeirra. Jafningjafræðsla snýst einmitt um að ungt fólk fræði annað ungt fólk og skapi rými þar sem hægt er að ræða það sem skiptir okkur máli. Við hittum um 1500 unglinga í sumar. Það gaf okkur einstakt tækifæri til að heyra hvað þeir eru að hugsa um, hafa áhyggjur af og hvaða pressu þeir upplifa. Samfélagsmiðlar Eitt af því sem kom mjög oft upp voru samfélagsmiðlar. Þeir eru stór hluti af daglegu lífi ungs fólks. Þar sjáum við stöðugt myndir og myndbönd af því hvernig við „eigum“ að líta út, klæða okkur og jafnvel hvernig lífið okkar eigi að vera. Í samtölum okkar við unglingana nefndu þeir ítrekað þessa tilfinningu að þurfa að passa í ákveðinn kassa, vera hluti af hópnum, líta rétt út og gera réttu hlutina. Ungir strákar töluðu til dæmis mikið um að „looksmaxa“, sem snýst um að reyna að hámarka útlit sitt. Það kom líka ítrekað upp í samtölum við unglingana að á samfélagsmiðlum séu ótal myndbönd þar sem ungu fólki er sagt hvernig það eigi að breyta sér, og jafnvel svelta sig, til að verða meira aðlaðandi. Útlit, mataræði, líkamsímynd og hugmyndir um hvernig „á“ að vera komu mikið upp. Okkur í Jafningjafræðslunni fannst sláandi hversu mörg virðast hrædd við að passa ekki inn eða verða skilin út undan. Kynlíf, sambönd og samskipti Kynlíf og sambönd voru líka stór hluti umræðunnar í sumar. Mörg ungmenni hafa sterkar hugmyndir um hvernig kynlíf og sambönd „eiga“ að vera og margar af þeim hugmyndum koma frá samfélagsmiðlum, vinum og því sem þau sjá á netinu. Mörg sjá kynferðislegt efni löngu áður en þau hafa sjálf reynslu af kynlífi eða samböndum. Klám kom mikið upp í umræðunum og virtist vera stærri hluti af lífi margra unglinga en við gerðum okkur kannski grein fyrir. Sum töluðu um það eins og það væri einfaldlega eðlilegur hluti af því að alast upp. Það sem við horfum á getur þó haft áhrif á væntingar okkar án þess að við tökum eftir því. Ungt fólk getur farið að halda að ákveðið útlit, hegðun eða samskipti séu eðlileg eða eitthvað sem ætlast sé til af því. Samskipti komu líka mikið upp. Að segja frá tilfinningum, setja mörk og segja nei getur verið erfitt, sérstaklega þegar maður er hræddur um að hinn aðilinn missi áhugann eða að maður verði skilinn út undan. Margir unglingar eru í raun að leita að svörum: Hvernig veit maður hvað er heilbrigt samband? Hvernig setur maður mörk? Hvað á maður að sætta sig við og hvað ekki? Hvernig segir maður nei? Fordómar Fordómar voru annað umræðuefni sem kom ítrekað upp, meðal annars gagnvart hinsegin fólki og fólki af erlendum uppruna. Stundum virtust ungmenni ekki sjálf átta sig á því að ákveðin ummæli væru fordómafull. Ef maður heyrir sömu orð eða hugmyndir aftur og aftur geta þau farið að virðast eðlileg. En orð eru ekki alltaf skaðlaus. Neikvæðar athugasemdir geta haft áhrif á það hvernig ung manneskja sér sjálfa sig og hvort henni finnist hún tilheyra. Sum geta farið að fela hluta af sjálfum sér af ótta við viðbrögð annarra. Þess vegna þurfum við að ræða þessi mál, ekki bara banna ákveðin orð eða segja unglingum hvað þau eigi að hugsa, heldur spyrja hvers vegna þau hugsa eins og þau gera, hvaðan hugmyndirnar koma og hvaða áhrif orð þeirra geta haft. Kæru foreldrar - talið við okkur Eftir að hafa hitt um 1500 unglinga í sumar er eitt sem situr sérstaklega eftir hjá okkur í Jafningjafræðslu Hins Hússins: Ungt fólk hefur mikið að segja. Við erum að hugsa um útlitið okkar, líkamann, kynlíf, sambönd, hvort við pössum inn og hvað öðrum finnst um okkur. Hvort við séum nógu flott, nógu falleg, nógu vinsæl eða einfaldlega nógu góð. Á sama tíma fáum við ótrúlegt magn upplýsinga á hverjum degi frá TikTok, Snapchat, Instagram og öðrum samfélagsmiðlum. Þess vegna þurfum við líka á ykkur að halda. Ekki endilega til að segja okkur hvað við eigum að hugsa eða gera. Stundum þurfum við bara á því að halda að þið spyrjið okkur. Að þið séuð forvitin um heiminn okkar og að við getum sagt ykkur frá einhverju án þess að vera strax dæmd eða fá fyrirlestur. Spyrjið okkur hvað okkur finnst. Spyrjið hvað við sjáum á TikTok. Spyrjið hvað vinir okkar eru að tala um. Spyrjið hvað okkur finnst erfitt. Það er kannski ekki alltaf auðvelt að fá svar. En haldið samt áfram að spyrja. Það skiptir máli. Höfundur er jafningjafræðari í Jafningjafræðslu Hins hússins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun