Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar 13. október 2026 08:32 Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. Tillagan felur í sér breytingu á reglum um forystu sambandsins, þar sem varaforsetum yrði fækkað úr þremur í einn. Þessi breyting, sem virðist tæknilegs eðlis, myndi þó hafa veruleg áhrif á valdajafnvægi og fulltrúaskipan innan ASÍ. Verði tillagan samþykkt gæti það orðið til þess að minna heyrist í röddum sem eru nauðsynlegar fyrir öfluga og baráttuglaða verkalýðshreyfingu. Ég hvetfulltrúa á þinginu til að hafna þessari tillögu. Til að skilja hvers vegna þetta skiptir máli þarf fyrst að skilja hvernig ASÍ starfar í dag. Sambandinu er stýrt af miðstjórn sem telur 15 manns og kemur reglulega saman – yfirleitt tvisvar í mánuði – til að marka stefnu í meginatriðum. Dagleg forysta og úrlausn brýnna mála er hins vegar í höndum framkvæmdahóps: forseta og þriggja varaforseta. Frá því að embætti þriðja varaforseta var stofnað hafa þessir fjórir einstaklingar hist reglulega sem samheldinn forystuhópur. Þessi fjögurra manna hópur er ekki formlega skilgreindur í reglum ASÍ, en hann mótar dagskrá miðstjórnarfunda, ræðir stefnumál og getur undirbúið mál áður en þau koma fyrir miðstjórn. Í reynd fylgir miðstjórnin oft þeirri dagskrá sem þessi forystuhópur setur. Núverandi samsetning þessa hóps er ekki tilviljun. Forsetinn og þriðji varaforsetinn koma úr röðum félagsmanna ASÍ sem hafa hærri laun. Fyrsti og annar varaforsetinn koma hins vegar úr röðum þeirra sem hafa lægri laun. Þessi dreifing tryggir að hagsmunir og kröfur skrifstofufólks og iðnaðarmanna sem og kröfur verkafólks fái framgang á æðsta stigi. Hún hefur einnig leitt til þess að kynjahlutfallið eru nú þrjár konur á móti einum karli. Í stuttu máli felur fjögurra manna nefndin í sér viðkvæmt jafnvægi milli stétta og kynja sem endurspeglar fjölbreytileika félagsmanna ASÍ. Ef tillagan verður samþykkt og varaformönnum fækkað í einn, myndi þetta jafnvægi raskast verulega. Þeir tveir leiðtogar sem eftir stæðu – forsetinn og eini varaforsetinn – gætu t.d. báðir komið úr röðum þeirra sem hafa hærri laun. Félagsmenn í láglaunastörfum, sem mynda stóran hluta ASÍ, myndu þá ekki hafa neinn þar til að gæta hagsmuna þeirra og væru algjörlega hunsaðir af forsetateyminu. Að fækka varaforsetum myndi auka líkur á slíku ójafnvægi. Félagsmenn með lægri laun gætu misst sæti sitt við borð forystunnar. Forystunefndinni, með sín fjölbreyttu sjónarmið, yrði skipt út fyrir tveggja manna framkvæmdastjórn sem líklega yrði einsleit hvað varðar stéttarlegan bakgrunn og hófsemi í aðferðum. Hér er ekki um hagræðingu að ræða, heldur völd. Við verðum líka að vera hreinskilin varðandi þær hvatir að baki þessari tillögu sem eru síður en svo til eftirbreytni. Þetta er tilraun til að einangra og útiloka þá félagsmenn innan ASÍ sem vilja beita róttækari aðferðum. Getur verið að hér sé um að ræða ráðabrugg fólks sem sækist eftir eigin frama með því að ýta hinum baráttusinnuðu til hliðar? Stuðningsmenn þessarar breytingar tala kannski um hagræðingu, en raunverulegt markmið þeirra virðist þó vera að lama róttækan arm verkalýðshreyfingarinnar og tryggja að ASÍ haldist örugglega í höndum annara en fulltrúa verka og láglaunafólks. Við þurfum fleiri raddir frá félagsmönnum ASÍ í lægri launaflokkum, ekki færri. Við þurfum það kynjajafnvægi sem núverandi forysta tryggir. Við þurfum þá stéttalegu fjölbreytni sem tryggir að hagsmunir alls launafólks séu gættir. Og við þurfum þau mismunandi sjónarhorn í umræðu um aðferðir sem fjögurra manna nefnd býður upp á. Þrjú höfuð eru betri en eitt. Fella ætti tillöguna um að fækka varaforsetum í einn. ASÍ verður að halda áfram að vera lýðræðislegt og baráttusinnað samband sem endurspeglar fjölbreytni félagsmanna. Of mikið er í húfi til að gera annað. Höfundur er fulltrúi á þingi ASÍ og stjórnandi í Eflingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Mest lesið Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun