Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Freyja Þórisdóttir skrifar 9. ágúst 2026 11:33 Bandaríska leikkonan Ava Gardner lék ástargyðjuna Venus í kvikmyndinni „One touch of Venus“ sem var frumsýnd í ágústmánuði árið 1948. Það er reyndar ekki Gardner sem prýðir himininn þann 12. ágúst heldur reikistjarnan Venus. Getty Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér.
Þessi er fimmti í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. „Við almyrkva skellur ekki á myrkur, heldur rökkur eins og hálftíma eftir sólsetur,“ stendur á vefnum sólmyrkvi.is en Sævar Helgi Bragason, oft þekktur sem Stjörnu-Sævar, er ritstjóri vefsins. Á vefnum kemur fram að fjórar reikistjörnur gætu birst þegar rökkvar: Venus í suðvestri, Júpíter og Merkúríus í vestri og hugsanlega Mars lágt í norðvestri. Þá gætu sumar af björtustu stjörnum himinsins einnig sést. Við almyrkvann sé sólin í Ljónsmerkinu og að Regúlus, skærasta stjarna Ljónsins, gæti sést austan (vinstra megin) við sólina og Kastor og Pollux, björtustu stjörnur Tvíburanna, vestan sólar. Beint fyrir ofan okkur, í hvirfilpunkti, gætu stjörnur Karsvagnsins svo leikið listir sínar.„Hafið samt augun frekar á almyrkvanum. Hann stendur alltof stutt yfir,“ stendur þar einnig. Ekki horfa á sólina í gegnum skjáinn Þá er ekki mælt með því að reyna að ná myndum af atburðarrásinni því þá er hætta á að missa af sjónarspilinu. Fjöldi ljósmyndara verða samankomnir með stórar aðdráttarlinsur og sjónauka, auk tug þúsunda ferðalanga, til að fanga myrkvann á mynd. Ef fólk einsetur sér að ná mynd á snjallsíma er nauðsynlegt að beina myndavélinni aldrei að sólinni án sólarsíu, „myndirnar verða ekki aðeins daprar, heldur getur sólarljósið skemmt myndflöguna.“ stendur á sólmyrkvavefnum. Einfaldast er þó að taka mynd í gegnum sólmyrkvagleraugu en þá þarf að gæta þess að horfa ekki sjálfur á sólina með berum augum á meðan. Við höfum þegar snert á því hvers vegna venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst, hverju fólk má búast við ef það rætist úr veðurspá og það verður skýjað þegar almyrkvinn verður, hvernig myrkvinn þann 12. ágúst næstkomandi sé ólíkur þeim sem var árið 2015 og hvernig myrkvarnir hafa dreifst í gegnum tíðina hérlendis.
Tunglið Sólin Bandaríkin Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Sjá meira