Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Aron Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2026 08:50 Eygló Fanndal Sturludóttir var valin íþróttamaður ársins 2025 eftir frábært ár þar sem að hún varð Evrópumeistari en hefur síðan þá gengið í gegnum afar erfitt tímabil. Vísir/Hulda Margrét Íþróttamaður ársins 2025, lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir hefur mátt þola mikla erfiðleika frá því að hún varð Evrópumeistari á síðasta ári. Á tímum efaðist um sjálfa sig sem íþróttamann en sér nú fyrir endann á erfiðleikunum, klár í að láta til sín taka á nýjan leik.
Eygló stóð á toppnum í apríl á síðasta ári er hún tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í Ólympískum lyftingum. Nokkrum mánuðum seinna tók við tók við krefjandi tímabil, meiðslum hrjáð sem fyrst nú sér fyrir endann á. „Fyrir um það bil ári síðan, 1. ágúst í fyrra, vakna ég einn morguninn og get ekki klætt mig í sokka. Bakið farið,“ segir Eygló í samtali við íþróttadeild Sýnar. Féll í jörðina Þegar Eygló var við það að komast til baka í mars á þessu ári meiddist hún aftur, reif brjóskþófa í mjóbaki á æfingu og var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús. „Það var áfall. Ég var bara á æfingu og allt í einu fann ég fyrir biluðum sársauka. Gat ekki staðið í lappirnar og var sótt með sjúkrabíl og farið með mig upp á spítala.“ View this post on Instagram A post shared by Eygló Fanndal Sturludóttir (@eyglo_fanndal) Sjálfsímynd tvinnuð við íþróttina Hún hefur mátt sætta sig við endurhæfingarferli fjarri þungum lyftingum. Stuðningsnet greip hana, meðal annars hjá Afreksmiðstöð Íslands, því andleg líðan tók högg. Eygló efaðist um sjálfa sig sem íþróttamann. „Sjálfsímyndin er svo ótrúlega tvinnuð saman við íþróttina. Ég er einhvern veginn bara Eygló lyftingakona. Svo einhvern vegin ertu það ekki. Ert allt í einu bara heima að gera æfingar frá sjúkraþjálfara.“ Eygló var verðskuldað kjörin íþróttamaður ársins 2025 eftir frábært ár í ólympískum lyftingum.Vísir/Hulda Margrét „Að verða íþróttamaður ársins en vera svo ekki að æfa. Ég átti mjög erfitt með það fyrst. Leið einhvern veginn ekkert eins og íþróttamanni. En núna, eftir að hafa hugsað meira um það, þá finnst mér þetta eiginlega vera eitt það íþróttamannslegasta sem maður getur gert. Að lenda í svona mikilli áskorun, svona miklu mótlæti en halda samt áfram. Reyna að komast í gegnum það, vinna sig upp aftur. Ég hef lært að hugsa þetta upp á nýtt. Þetta er líka íþróttamannslegt.“ Óvenjulegt ár í læknisfræði Samhliða því að vera afreksíþróttamaður stundir Eygló nám í læknisfræði við Háskóla Íslands. Hún er nýbúin að ljúka fimmta ári sínu í náminu, því erfiðasta til þessa. „Fimmta árið var erfiðasta árið mitt. Bæði af því að ég var ekki með útrásina sem felst í því að fara á æfingu og ég á að reyna sitja sem minnst. Sér í lagi þegar ég var nýbúin að meiða mig. Það var tönglast á því við mig að kyrrseta væri mjög slæm. Það var því mjög erfitt að læra fyrir próf og geta ekki sest niður, erfitt að sitja í tímum. Kyrrseta var ekki í boði fyrir Eygló og því þurfti hún að finna fjölbreyttar leiðir til þess að læra í læknisfræðinniMynd: Eygló Fanndal á Instagram Ég þurfti að finna alls konar leiðir til þess að sinna náminu án þess að mega setjast. Ég var alltaf með það í hausnum að eitthvað væri ekki gott fyrir bakið.“ Þannig þú hefur lært í ýmsum stellingum? „Já ég hef verið liggjandi á gólfinu með bókina upp í lofti að lesa og allt. En það tókst. Eitt ár eftir. Ég hlýt að geta klárað þetta.“ Gefur allt sem hún á Eygló fer hægt en örugglega í sakirnar á einhverja mánuði eftir í endurhæfingarferlinu en þyrstir í að komast aftur á keppnisgólfið. Augun á Ólympíuleikunum 2028 í Los Angeles. „Ég stefni á að byrja keppa á næsta ári. Taka þátt á öllum þeim mótum sem ég þarf að þátt í til þess að komast inn. Ég verð bara að fá að sjá hvernig líkaminn svarar. Ef hann svarar vel þá er ekkert að fara stoppa mig. Þá ætla ég að gera allt sem ég get til að fara inn á þetta mót.“ Stefnan sett á Ólympíuleikana.IWF/G.Scala Það yrði stoltasta stundin á ferlinum að ná inn á Ólympíuleikana. „Ef árið er 2028 og ég kemst inn á Ólympíuleikana og horfi síðan til baka. Þá held ég að það sé ekkert sem geti gert mig stoltari heldur en að hafa komist í gegnum þetta. Alla þessa erfiðleika, áskoranir en samt haldið áfram og samt náð því sem ég ætlaði að gera. Ég reyni að finna þá tilfinningu. Stoltið sem ég myndi finna ef ég kæmist inn. Reyni að halda í það. Nota það sem hvatninguna áfram. Þetta er það sem ég vil upplifa. Ég reyni að halda áfram þar til ég næ að upplifa þessa tilfinningu.“ Viðtalið við Eygló Fanndal má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Lyftingar Íþróttamaður ársins ÍSÍ Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ „Hans besti leikur“ 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Dagskráin: Doc Zone en fyrst stórleikur Chelsea og Man. Utd Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Sjá meira