Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Lovísa Arnardóttir skrifar 6. ágúst 2026 09:30 Það hefur verið nóg að gera hjá ljósmæðrum Landspítalans í júlí. Vísir/Vilhelm Óvenju margar fæðingar voru á Landspítala í júlí en yfir 350 börn fæddust þar í síðasta mánuði. Það eru um 11,4 börn á sólarhring. Yfirljósmóðir býst þó ekki við metfjölda fæðinga á árinu.
Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Guðlaugu Erlu Vilhjálmsdóttur, yfirljósmóður á fæðingardeild, sem segir að í hennar samanburði á fæðingum í júlí megi sjá að júlímánuður í ár sé sá stærsti síðustu átta ár. Til samanburðar hafi fæðst rúmlega 280 börn á Landspítalanum í júní og flest börn fæðst í október. Haft er eftir Guðlaugu í frétt Morgunblaðsins að yfirleitt fari meðaltal á sólahring á þessum árstíma ekki yfir tíu, og sé frekar í kringum átta eða níu. Hún segir að miðað við sónartölur hafi deildin búist við fjölda fæðinga en einhverjar konur hafi farið í sónar annars staðar. Tölur hennar eigi aðeins við um Landspítala, ekki fæðingardeildir á til dæmis Akranesi, Akureyri eða annars staðar á landinu. Frjósemi aldrei minni Hún segir þetta ekki endilega þýða að fleiri börn muni fæðast í ár en önnur ár. Fram kom í samantekt Hagstofunnar um frjósemi í maí að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2025 hefði verið 4.387 sem var lítilsháttar fjölgun frá árinu 2024 þegar 4.311 börn fæddust. Alls fæddust 2.292 drengir og 2.095 stúlkur en það jafngildir 1.094 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum. Í samantekt Hagstofunnar kom einnig fram að helsti mælikvarði á frjósemi væri fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt sé miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Árið 2025 var frjósemi kvenna búsettra á Íslandi 1,56 og hefur hún aldrei verið minni frá því að mælingar hófust árið 1853 fyrir utan árið 2024 þegar frjósemi var einnig 1,56. Frjósemi hefur ekki farið upp fyrir 2,0 hér á landi síðan árið 2012 þegar hún var 2,1. Á vef Hagstofu kom jafnframt fram að frjósemi á Norðurlöndunum hefur minnkað á undanförnum árum, líkt og á Íslandi. Á síðasta ári var fjöldi lifandi fæddra barna á hverja konu rúmlega 1,4 í Svíþjóð, um 1,5 í Noregi og Danmörku en í Finnlandi var hún 1,3. Í Færeyjum fór frjósemin upp í 2,1 árið 2025 miðað við 1,9 árið á undan. Á Grænlandi var frjósemin 1,7 árið 2025 en hún hefur minnkað hratt síðustu ár og var þannig 2,12 árið 2020.
Frjósemi Landspítalinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Sjá meira