Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Áróra L Davíðsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 12:40 Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur hvatt þá sem sjá til minka til að láta vita í síma 525-6700. Vísir/Lýður Valberg Engir minkar hafa ratað í gildrur í nágrenni við Dalsbú síðastliðna þrjá sólarhringa og aðgerðir hafa gengið vonum framar að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. „
Það er bara þannig sem við viljum hafa þetta,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Auk þess hafi engar ábendingar um minka á ferli sem eigi við atvikið á Dalsbúi hafa borist síðasta sólarhring. Á milli tíu og tólf þúsund minkar voru á Dalsbúi þegar þúsundir minka sluppu úr búrum sínum á aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku. Dalsbú er síðasta starfandi minkabú landsins. Veiðimenn, sérþjálfaðir hundar og starfsfólk á vegum Mosfellsbæjar hafa undanfarna daga unnið að því að handsama eða aflífa dýrin. Gildrum hefur jafnframt verið komið fyrir í nágrenni búsins og neðar í dalnum. Hilmar segir aðgerðir hafa gengið vonum framar og staðan sé nokkuð góð. Aðgerðarteymi og veiðimenn með hunda verði þó enn á vakt í dag og næstu daga þar á eftir. „Við erum ekki alveg hætt, við erum með felligildrur, háfa og hunda á vaktinni í dag og erum svona að skanna svæðið. Svo getum við vonandi farið að draga í land ef þetta heldur áfram að ganga svona vel,“ segir Hilmar. Gæfustu minkana hafi veiðimenn getað gripið með höndunum, „enda hafa þeir aldrei farið út fyrir búrin og vita ekkert út í hvað þeir eru að fara. Þannig að þeir voru allir hálf svona ringlaðir.“ Ekki sé kominn í ljós heildarfjöldi þeirra minka sem hafi verið fangaðir eða aflífaðir en það skýrist væntanlega bráðlega. „Það er bara bóndans að halda utan um töluna. Það var svolítið kaos þarna til að byrja með en nú hlýtur bóndinn að fara að taka utan um sitt bú.“ Hann viti ekki hvernig rannsókn lögreglu á málinu miði áfram. „Við leyfum lögreglu að sjá alfarið um það. En þeir þurfa að hafa hendur í hári þessara manna svo þeir valdi nú ekki meiri usla.“ Ekki náðist samband við lögreglu um stöðu rannsóknar á málinu við vinnslu fréttarinnar.
Minkum sleppt í Mosfellsdal Loðdýrarækt Dýr Lögreglumál Mosfellsbær Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira