Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. júlí 2026 17:51 Steinunni krossbrá þegar minkur birtist á húddi hennar á Kringlumýrabraut en hann hafði þá sníkt far frá Úlfarsfelli. Björn I. Guðmundsson/Aðsend Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut.
Steinunn er sjúkraþjálfari og mikill útivistargarpur og heldur úti TikTok-aðgangnum „Steinath“ þar sem hún sýnir frá hlaupum sínum, hjólaferðum og ýmsu öðru úr lífi sínu. Á fimmtudaginn birti hún hins vegar óvenjulegt myndband af hlaupi sínu á Úlfarsfelli. „Smá örsaga og varúðarorð ef þið ætlið að fara að hlaupa í Mosó eða á Úlfarsfelli. Kíkið á bílana ykkar áður en þið farið af stað eða bara sleppið því að fara þarna, grínlaust,“ segir Steinunn í byrjun myndbandsins. @steinath Farið varlega elsku hlaupavinir 😅😱☣️ #hlaupatok #hjólatiktok #gellurstyðjagellur #fyrirþig ♬ original sound - Steina „Ég fór í dag, geggjað hlaup á Úlfarsfelli og allt frábært við það, geðveikt veður og allt æðislegt. Ég er svo að keyra eftir að ég kem heim og er á Kringlumýrarbraut. Þá hefur minkur falið sig í húddinu á bílnum mínum,“ segir hún. Minkurinn hafi þvínæst hlaupið meðfram framrúðu bílsins og stökk niður á götu. „Ég er grínlaust ennþá trámatíseruð. Barnið mitt getur vottað fyrir það hvað mér brá, þetta var hræðilegt,“ segir Steinunn. Hún opnaði síðan húddið sem var sem betur fer tómt og tilkynnti málið í kjölfarið til lögreglu og Mosfellsbæjar. Sjá einnig: Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Á miðvikudaginn var mörg hundruð minkum, ef ekki þúsund, sleppt úr minkabúinu Dalsbúi og síðan þá hafa staðið yfir aðgerðir til að fanga eða drepa minkana. Hins vegar er ekki víst hvort um var að ræða villtan mink eða flóttamink sem fékk sér far með Steinunni. „Ég öskra upp yfir mig“ Fréttastofa heyrði hljóðið í Steinunni til að fá skýrari lýsingu af atburðarásinni. Steinunn hafði hlaupið í um fjóra tíma á Úlfarsfelli þegar hún keyrði heim í Hlíðarnar og var þar á rúntinum á leiðinni í verslun með dóttur sinni. „Ég var komin heim í Hlíðarnar en stoppaði ekkert og var á leiðinni annað. Ég var sem betur fer að keyra af beygjuakrein á Kringlumýrabraut inn á Listabraut þannig ég var búin að hægja vel á mér, annars hefði ég örugglega keyrt á, mér brá svo,“ segir hún. „Þar stekkur minkurinn upp og ég sé hann hlaupa milli rúðunnar og húddsins. Mér leið eins og hann væri ofan á mér, þetta er svo nálægt. Þetta er gömul Toyota Rav og þá var hann búinn að, ég veit það ekki, hanga á húddinu eða liggja þarna ofan á.“ Minkur að læðast í Mosfellssveit.Reynir Grétarsson Steinunn hafi brugðist ókvæða við óvæntum minknum. „Ég öskra upp yfir mig og greyið níu ára dóttir mín, sem var með mér í bílnum, er ennþá að hlæja að mér,“ segir Steinunn. Steinunn kampakát á Úlfarsfelli. Að sögn Steinunnar hafi minkurinn verið lítill brúnn og hélt hún í fyrstu að þetta væri rotta áður en hún áttaði sig á hvernig dýr þetta væri. „Ég sá ekki hvert hann fór en hann hljóp í átt að umferðinni á Kringlumýrabraut þannig það getur vel verið að það hafi verið keyrt á hann,“ segir hún. „Svo þorði ég ekki annað en að opna húddið og þá var náttúrulega ekkert þar,“ segir Steinunn sem hafði í kjölfarið samband við lögreglu sem þakkaði henni fyrir ábendinguna.
Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Reykjavík Hlaup Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira