„Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Eiður Þór Árnason skrifar 17. júlí 2026 14:58 Valgerður Árnadóttir er formaður Hvalavina. Vísir/Arnar Formaður Hvalavina segir það koma á óvart að Matvælastofnun (MAST) telji að Hvalur hf. hafi ekki brotið gegn lögum um dýravelferð þegar langreyður var skotin fjórum sinnum í júní og hún háði dauðastríð í 31 mínútu.
Stofnunin segir að fyrsti sprengiskutullinn hafi lent innan æskilegs marksvæðis og skipverjar gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyðina eins hratt og mögulegt var. „Þrátt fyrir að þeir hafi hitt á tiltekinn skotstað þá var fagráð um velferð dýra búið að álykta árið 2023 að þrátt fyrir að þeir hitti á réttan stað þá er ekki hægt að tryggja að dýrið deyi um leið og það er skotið. Þess vegna er ekki hægt að segja að hvalveiðiaðferðirnar standist lög um velferð dýra,“ segir Valgerður Árnadóttir hjá Hvalavinum. „Það er búið að úrskurða um það fyrir þremur árum að það er engin mannúðleg leið til þess að veiða hvali og við sjáum það að þrátt fyrir að þeir hitti á réttan stað akkúrat þarna þá deyr dýrið ekki og þeir skjóta tvisvar í viðbót á réttan stað og eitt skipti annars staðar. Þannig að dýr þurfi fjögur skot, 31 mínútu að deyja, það auðvitað stenst ekkert velferð dýra og það er galið að komast að þessari niðurstöðu einungis vegna þess að þeir skutu dýrið á tiltekinn stað sem reglur kveða á um.“ Binda vonir við frumvarp atvinnuvegaráðherra Hvalavinir og önnur samtök hafa krafist þess að hvalveiðar verði stöðvaðar vegna brota gegn dýravelferð. „Við erum bara ekki sammála þessari niðurstöðu og finnst hún eiginlega bara galin, vegna þess að í lögunum segir að það eigi að valda dýrum sem minnstum skaða í veiðum og þetta er greinilega brot á slíku. Það er ekki neitt eðlilegt við það að dýr þurfi að þjást í 30 mínútur.“ Hanna Katrín Friðriksson er atvinnuvegaráðherra.Vísir/lýður valberg Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur boðað endurskoðun á löggjöf um hvalveiðar í haust. „Við að sjálfsögðu vonum að hún leggi fram frumvarp sem bannar hvalveiðar vegna þess að það er endurtekið búið að komast að þeirri niðurstöðu að það sé engin mannúðleg leið til þess að drepa hvali og þá eigum við bara að láta af þeirri iðju okkar. Ef hún ætlar að breyta reglugerðinni þannig að það verði erfiðara fyrir hvalveiðimenn að veiða þá mér finnst það ekki nógu langt gengið.“ Hvalur 8 kemur með langreyði í Hvalfjörð í lok júni.Vísir/Vilhelm Verið að bregðast dýrum í neyð Valgerður bendir á að fordæmi séu fyrir því að veiðar séu stöðvaðar líkt og var gert árið 2023 vegna dýravelferðarsjónarmiða. „Okkur finnst það sama eiga við núna. Okkur þykir mjög leitt að sjá að Matvælastofnun sé að bregðast dýrum í neyð.“ „Ég veit ekki hvað skal segja. Maður er einhvern veginn alveg uppgefinn á þessu. Ætlum við sem þjóð að bregðast dýrunum á þennan hátt? Ætlum við ekki að fylgja þeim siðferðilegu gildum sem við höfum, að dýr eigi ekki að kveljast í veiði? Eru þetta skilaboðin sem við viljum senda út í heiminn og hvort til annars að þetta sé viðunandi veiðiaðferð á Íslandi?“ Meirihluti veitingastaða hætt að selja hvalkjöt síðastliðið ár Hvalavinir standa á bak við sérstakt ákall þar sem ferðamenn á Íslandi eru hvattir til að leggja sér hvorki hval- né lundakjöt til munns og í stað njóta þess að horfa á dýrin. Valgerður segir að átakið sem nefnist For the Love of Iceland hafi gengið mjög vel og hvalaskoðunarfyrirtæki meðal annars dreift bæklingum um ákallið. Hún bætir við að yfir helmingur þeirra veitingastaða sem voru með hval á matseðli sínum þegar átakið byrjaði fyrir ári síðan séu hættir að bjóða upp á hvalkjöt. Þá hafi fleiri þúsund ferðamanna hafi skrifað undir ákallið. Þá bendir Valgerður á að 2,5 milljónir undirskrifta hafi safnast í tengslum við ákall Avaaz til forsætisráðherra og atvinnuvegaráðherra um að stöðva hvaleiðar á Íslandi. „Þrýstingurinn er líka utan frá. Það voru yfir hundrað vísindamenn og alþjóðlegir umhverfislögfræðingar sem skrifuðu Hönnu Katrínu bréf í júní vegna þessa. Þannig að það er þrýstingur alls staðar frá og það er bara mjög leitt að eftirlitsstofnanir séu enn og aftur að bregðast hvölunum,“ segir Valgerður hjá Hvalavinum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hvalir Hvalveiðar Tengdar fréttir Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Hvalur hf. braut ekki gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum þegar hvalur var skotinn með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar (MAST) sem hefur lokið rannsókn á málinu. Um var að ræða fyrstu langreyði yfirstandandi vertíðar. 17. júlí 2026 10:36 Mest lesið Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Innlent Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Innlent Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Fleiri fréttir Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Skjálftahrina suðvestur af Eldey Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Sjá meira
Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Hvalur hf. braut ekki gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum þegar hvalur var skotinn með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar (MAST) sem hefur lokið rannsókn á málinu. Um var að ræða fyrstu langreyði yfirstandandi vertíðar. 17. júlí 2026 10:36