Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Eiður Þór Árnason skrifar 17. júlí 2026 10:36 Hvalur 8 kemur með langreyði í Hvalfjörð í lok júni. Vísir/Vilhelm Hvalur hf. braut ekki gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum þegar hvalur var skotinn með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar (MAST) sem hefur lokið rannsókn á málinu. Um var að ræða fyrstu langreyði yfirstandandi vertíðar. „
Rannsóknin sýnir að skipverjar Hvals 8 hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyðina eins hratt og mögulegt var. Þó svo að dauðatíminn sé langur þá hafi skipverjar brugðist við samkvæmt verklagi. Fyrsta skotið hæfir dýrið innan æskilegs marksvæðis, sem og tvö af þremur endurskotum,“ segir í tilkynningu frá MAST. Stofnunin hafi ekki gögn sem bendi til þess að skotmaður á skipinu Hvali 8 hefði getað skotið endurskoti fyrr en gert var né gripið til annarra aðgerða sem hefðu stytt eða linað þjáningar dýrsins. Því sé það niðurstaða rannsóknar MAST að Hvalur hf. hafi ekki brotið gegn reglugerð um veiðar á langreyðum eða lögum um velferð dýra. Málinu er lokið að hálfu stofnunarinnar. Hvalur 8, eitt af hvalveiðiskipum Hvals hf. Vísir/Vilhelm Gerðist 22. júní Samkvæmt MAST sem fer með eftirlit með hvalveiðum varð atvikið þann 22. júní síðastliðinn. Dýrið var fyrst skotið klukkan sex mínútur yfir fimm, aftur tíu mínútum síðar og þá tvisvar sinnum og svo aftur ellefu mínútum síðar í fjórða sinn. Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri MAST, sagði í samtali að við fréttastofu 1. júlí að veiðin væri til skoðunar. Tíminn sem hafi tekið að drepa langreyðina væri lengri „en kannski æskilegt er.“ „Lög um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum gera kröfu um það að dýrið skal aflífað með þeim skemmsta hætti og valda sem minnstum sársauka,“ bætti hún við. Sambærilegt atvik átti sér stað sumarið 2023 og voru veiðar Hvals hf. þá stöðvaðar tímabundið á meðan að atvikið var rannsakað frekar og fyrirtækinu gefinn kostur á að bæta ráð sitt. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hvalir Hvalveiðar Matvælastofnun Tengdar fréttir Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. 12. júlí 2026 22:58 Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Matvælastofnun rannsakar af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals. Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað. 1. júlí 2026 12:57 Hvalur háði hálftíma dauðastríð Samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar háði langreyður hálftíma langt dauðastríð þegar skyttur Hvals hf. veiddu hana hinn 22. júní. Dýraverndarsamtök krefjast þess að félagið verði svipt veiðileyfi. 1. júlí 2026 09:59 Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira
Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. 12. júlí 2026 22:58
Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Matvælastofnun rannsakar af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals. Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað. 1. júlí 2026 12:57
Hvalur háði hálftíma dauðastríð Samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar háði langreyður hálftíma langt dauðastríð þegar skyttur Hvals hf. veiddu hana hinn 22. júní. Dýraverndarsamtök krefjast þess að félagið verði svipt veiðileyfi. 1. júlí 2026 09:59