Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 16. júlí 2026 11:54 Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar. vísir/einar Þrátt fyrir að einungis ein spurning verði á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en í hefðbundnum kosningum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku.
Undirbúningur fyrir þjóðaatkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu er hafinn hjá landskjörstjórn og það styttist í að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjist. „Það er stefnt að því að hún hefjist 27. júlí næstkomandi en þá verður landskjörstjórn búin að auglýsa kjördaginn formlega og hún fer fram eins og vant er hjá sýslumannsembættunum hér á landi og svo erlendis hjá sendiráðum og ræðismönnum,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar. Hún segir fordæmi fyrir því að fleiri hafi greitt atkvæði utan kjörfundar þegar kosningar eru að sumri en bendir þó á að helsta sumarleyfistímanum verði lokið þann 29. ágúst. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 27. júlí.vísir/Vilhelm Síðasta þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram fyrir fjórtán árum eða árið 2012 þegar atkvæði voru greidd um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þá var kjörsóknin einungis ríflega fjörutíu og átta prósent en hún var þó meiri í atkvæðagreiðslum um Icesave. „Í síðustu forseta- og alþingiskosningum var hún alveg í kringum áttatíu prósent en þetta er auðvitað málefni sem er mikið fjallað um í dag þannig við þurfum bara að bíða og sjá til hvernig hún verður,“ segir Ástríður um mögulega kjörsókn. Reikna má með fyrstu tölum á svipuðum tíma og í hefðbundnum kosningum. Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu og eru fyrstu tölur yfirleitt að berast tuttugu til þrjátíu mínútum síðar. Þurfa enn að flytja atkvæðin Þrátt fyrir að kjörseðillinn verði einaldur, með einungis einni spurningu og svarmöguleikunum já eða nei, er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en vanalega. „Atkvæðin verða talin í hverju kjördæmi fyrir sig hjá yfirkjörstjórnum kjördæmanna og kjörseðillinn er vissulega einfaldur þannig það má alveg ætla að flokkun og talning atkvæði verði að einhverju leyti skilvirkari en þegar við erum með mjög stóra seðla með mörgum framboðum og jafnvel breytingum en það breytir því ekki að það þarf engu að síður að flytja atkvæði frá kjörstöðum og á talningastaði og það tekur alltaf einhvern tíma. Þannig það er pínu erfitt að segja til um hvort það verði tilkynnt um niðurstöðu fyrr eða síðar,“ segir Ástríður en helstu upplýsingar um atkvæðagreiðsluna má finna á nýjum kosningavef landskjörstjórnar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira