Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 15. júlí 2026 16:02 Borgirnar Rwampara og Bunia í Ituri-héraði hafa komið einna verst út úr faraldrinum en þar hafa einnig átök og ódæði átt sér stað á undanförnum árum og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín. Getty 2.011 hafa greinst með ebólu í Austur-Kongó og þar af 754 látist vegna faraldurs sem breiðist hratt út um landið. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldurs í maí.
AP greinir frá og segir heilbrigðisstarfsmenn einnar stærstu sjúkrastofnunar landsins hafa farið í verkfall í dag vegna launamála. WHO segir meira en hundrað heilbrigðisstarfsmenn hafa smitast frá því að faraldurinn hófst í maí á þessu ári og árásir á starfsmenn og sjálfboðaliða hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari síðustu mánuði. Mörg þeirra rúmlega sjö hundruð sem hafa látist hafi aldrei komið á heilbrigðisstofnun vegna smits eða veikinda, segir Dr. Chikwe Ihekweazu, yfirmaður neyðarviðbragða WHO í heilbrigðismálum, eftir ferð sína til Bunia í Ituri-héraði Austur-Kongó. Borgirnar Rwampara og Bunia í Ituri-héraði hafi komið einna verst út úr faraldrinum en þar hafi einnig átök og ódæði átt sér stað á undanförnum árum og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín. Sautjándi ebólufaraldurinn í Austur-Kongó Þjóðin hefur barist við ebólufaraldur sem orsakast af Bundibugyo-afbrigði veirunnar en ekki er til bóluefni við afbrigðinu. Alls eru 753 í einangrun eða liggja inni á sjúkrahúsi en samkvæmt gögnum heilbrigðisráðuneytis landsins hafa 366 náð bata hingað til. Smitrakning sé mikil áskorun og nái aðeins til 67 prósent útsettra. Minnst áttatíu prósent nýrra smittilfella komi frá óþekktum smitleiðum. Fólksflutningar vegna vopnaðra átaka og námuvinnslu geri stjórnvöldum erfitt fyrir að rekja smitleiðir. Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976 en síðasta faraldri lauk formlega í maí 2021. Fyrri faraldrar hafi verið af völdum Zaire-afbrigðis veirunnar sem er meðhöndlað með bóluefni. Hvorki bóluefni né meðferðarúrræði sé til við Bundibugyo-afbrigði veirunnar sem valdi núverandi faraldri.
Austur-Kongó Ebóla Tengdar fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda. 24. júní 2026 16:49 Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi. 1. júní 2026 13:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Sjá meira
Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda. 24. júní 2026 16:49
Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi. 1. júní 2026 13:00