Lítil bjartsýni á úrslitastundu Birgir Olgeirsson og Eiður Þór Árnason skrifa 13. júlí 2026 23:16 Erfiðar viðræður gætu verið fram undan hjá aðilum vinnumarkaðarins. Vísir/Vilhelm Olíuverð hefur hækkað um rúm níu prósent í dag eftir að átök Bandaríkjanna og Írans hörðnuðu og óvissa jókst um Hormússund. Hækkunin getur skilað sér í íslenskt verðlag einmitt þegar úrslitamæling vegna kjarasamninga er handan við hornið.
Hormússund er mjó siglingaleið milli Írans og Ómans og eina sjóleiðin út úr Persaflóa. Um fimmtungur af allri olíu sem flutt er á sjó í heiminum fer þar um. Þegar átök harðna á svæðinu getur olíuverð því hækkað hratt og á endanum skilað sér á eldsneytisdælurnar. Þegar eldsneyti og flutningar verða dýrari getur það svo skilað sér í hærra vöruverði. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Ársverðbólga er nú í 5,2 prósentum en bæði Íslandsbanki og Landsbankinn hafa spáð sömu tölu í næstu mælingu sem væntanleg er í lok júlí og svo 5,4 prósenta verðbólgu í ágúst. Verði ágústmælingin yfir 4,7 prósentum skapast heimild til að segja upp kjarasamningum. En það er ekki eina skilyrðið því verðhækkun verður að vera í samræmi við skammtímaviðmið samninganna. Forsvarsmenn á vinnumarkaði eru almennt ekki bjartsýnir á að forsendur kjarasamninganna haldi í haust en það þýðir ekki sjálfkrafa að samningunum verði sagt upp. Brostið fjórum sinnum Forsendur hafa brostið fjórum sinnum frá efnahagshruninu. Árið 2009 var launahækkunum frestað. Árið 2012 var samið um frekari aðgerðir stjórnvalda. Árið 2013 var samningstíminn styttur um tvo mánuði og árið 2017 var ákvörðun um uppsögn frestað um eitt ár. Svona hefur verið brugðist við forsendubresti.Sýn Í hvert sinn fannst leið til að halda samningunum á lífi. Nú ræða ríkið, ASÍ og Samtök atvinnulífsins saman. Þrír hópar skoða fjárhag heimilanna og áhrif verðtryggingar, leiðir til að draga úr sjálfvirkum verðhækkunum og hvernig fá megi skýrari mynd af launaþróun. Niðurstöðurnar eiga að liggja fyrir í byrjun september og gætu orðið grunnur að samkomulagi. Til þess þarf þó að brúa bilið milli aðilanna. Verkalýðshreyfingin segist hafa samið um hóflegar launahækkanir til að halda verðbólgu í skefjum en það hafi ekki tekist. Atvinnulífið segir á móti að framleiðnin, þau verðmæti sem verða til á hverri vinnustund, hafi ekki haldið í við launahækkanir. Samtalið fram undan snýst því ekki um eina tölu heldur líka hver stóð við sitt og hvort hægt sé að ná sameiginlegum grundvelli til að halda samningunum á lífi.
Kjaramál Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Verðlag Stéttarfélög Neytendur Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja „Eins og staðan er núna er náttúrulega mjög lítið hægt að gera til þess að forsendur bresti ekki. Það hefði þurft að grípa til þeirra aðgerða fyrr. Það er hins vegar hægt að gera mikið og ábyrgð aðila núna er að reyna að láta samninga halda og það er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.“ Þetta segir formaður VR stéttarfélags, um stöðu kjarasamninga eftir að ljóst varð að ársverðbólgan jókst lítillega í júní og mælist nú 5,2 prósent. 26. júní 2026 21:53 Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Verðbólga er að aukast þvert á spár en hækkun flugfargjalda vegur þar hvað þyngst. Hagfræðingur ASÍ segir áhyggjuefni að markmið kjarasamninga um minni verðbólgu og lægri vexti séu ekki að nást. 26. júní 2026 12:02 „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt að það náist sátt á vinnumarkaði um launasvigrúm og launaskrið. Hann sé bjartsýnn fyrir haustinu þó svo að útlit sé fyrir að verðbólga verði hærri en forsenduákvæði kjarasamninga geri ráð fyrir og þeir geti því losnað. Hann segir það áhyggjuefni að það taki ekki allir stöðunni með sömu alvöru. 25. júní 2026 10:34 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Fleiri fréttir Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Sjá meira
Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja „Eins og staðan er núna er náttúrulega mjög lítið hægt að gera til þess að forsendur bresti ekki. Það hefði þurft að grípa til þeirra aðgerða fyrr. Það er hins vegar hægt að gera mikið og ábyrgð aðila núna er að reyna að láta samninga halda og það er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.“ Þetta segir formaður VR stéttarfélags, um stöðu kjarasamninga eftir að ljóst varð að ársverðbólgan jókst lítillega í júní og mælist nú 5,2 prósent. 26. júní 2026 21:53
Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Verðbólga er að aukast þvert á spár en hækkun flugfargjalda vegur þar hvað þyngst. Hagfræðingur ASÍ segir áhyggjuefni að markmið kjarasamninga um minni verðbólgu og lægri vexti séu ekki að nást. 26. júní 2026 12:02
„Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt að það náist sátt á vinnumarkaði um launasvigrúm og launaskrið. Hann sé bjartsýnn fyrir haustinu þó svo að útlit sé fyrir að verðbólga verði hærri en forsenduákvæði kjarasamninga geri ráð fyrir og þeir geti því losnað. Hann segir það áhyggjuefni að það taki ekki allir stöðunni með sömu alvöru. 25. júní 2026 10:34