Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júlí 2026 22:14 Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur var til viðtals í Bítinu. Samsett Næringarfræðingur sem var til viðtals í Bítinu í morgun rak upp stór augu þegar Sigmar Vilhjálmsson, þáttarstjórnandi, dró upp þrjá próteindrykki og próteinbúðing í nesti. „Ég er að keyra svolítið á þessu,“ viðurkennir Sigmar. Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur, var þangað komin til að ræða fæðubótarefni. „
Ég borða kvöldmat en er búin að taka út eiginlega alla fæðu yfir daginn nema að ég passa að halda uppi próteinmagninu. Ef það er gott prótein í boði í hádeginu þá fer ég upp og fæ mér,“ segir Sigmar. „En vanalega borðar þú ekkert yfir daginn og drekkur próteindrykki?“ spyr Elísabet. „Hvað er ég að gera rangt Elísabet?“ „Einhæft, of mikil mjólkurvara og ég hugsa að þú fáir hægðatregðu.“ „Ég tek sveskjugraut líka með þessu,“ skýtur Sigmar þá inn. „Þegar við erum svona einhæf, þá ertu að ræna járnbirgðir líkamans með því að taka inn svona mikið af mjólkurvöru yfir daginn.“ Sigmar skýtur þá inn að hann taki inn járntöflur. Elísabet ræður honum heilt. „Ég er ekkert mótfallin því að þú borðir einu sinni á dag, það er ekki málið, en þú þyrftir að vera með fjölbreyttari fæðu til lengri tíma litið. Þú getur alveg verið góður í tvo mánuði en þetta er ekkert skynsamlegt mikið lengur.“ Elísabet segir mikilvægt að hlusta á líkamann en brýnir þó fyrir Sigmari að ef hann ætli bara að borða kvöldmáltíð þurfi hann að taka inn einhverja næringu um fjórum tímum áður. Fæðubótarefni ganga í tískubylgjum Þó að umræðan í upphafi viðtalsins hafi verið viðeigandi var Elísabet fyrst og fremst komin til að ræða fæðubótarefni. Elísabet segir í mikilli tísku núna að taka inn steinefni og sölt aukalega. „Ég fór á bensínstöð í gær, sem er ekki í frásögur færandi, nema að þegar ég fór að kassanum var þar meira af söltum en hægt er að kaupa í apóteki.“ Ekki sé hættulaust að taka inn steinefni og sölt aukalega. Inntaka í of miklu magni geti haft óvænt áhrif. „Ef þú tekur svona mikið af steinefnum, ef þú ert bara að taka þetta til að bragðbæta vatnið þitt, þá getur þú farið í ójafnvægi.“ Fólk átti sig ekki endilega á samspili mismunandi steinefna, upptaka á einu geti hindrað upptöku á öðru. „Það er ekkert víst að líkaminn sé að taka þetta upp eins og þegar við erum að fá þetta úr fæðu.“ Fólk búið að mála sig út í horn þegar það leitar til Elísabetar Elísabet segir að þegar fólk komi í viðtal til hennar komi það oft með heilan poka af bætiefnum með sér sem það taki inn og vilji fá að vita hvað það sé að gera rangt. Elísabet útskýrir að inntaka á einu bætiefni geti hamlað upptöku á öðru efni. „Fólk er fast í hringekju þess að skorta alltaf eitthvað. Lausnin er fjölbreytt fæða. Upptaka eins efnis getur hindrað annað.“ Haga þurfi inntöku fæðubótarefna rétt. „Þetta er ekki alveg eins saklaust og við höldum.“ Fólk byrji oft upprunalega að taka inn fæðubótarefni vegna einhvers slappleika en átti sig ekki endilega á samspili þeirra. Elísabet segist alltaf senda skjólstæðinga í blóðprufu til að fá áreiðanlegar niðurstöður. „Fólk er að koma í viðtal með tíu, fimmtán krukkur bætiefna í poka en labbar út með þrjár.“ Snefilefni í fæðubótarefnum gangi líka í tískubylgjum Þá sé önnur tíska í fæðubótarefnum að bæta inn efnum í snefilmagni. Þessa stundina sé það kopar sem er í tísku. Kopar getur hjálpað með rauð blóðkorn, ensím og fleira en á sama tíma getur reynst hættulegt að taka inn of mikið. Það getur valdið skaða á lifur, nýrum og taugafrumum. Elísabet hvetur til varúðar: „Viljið þið fara varlega!“ Elísabet segir mjög mismunandi gæði á þeim fæðubótarefnum sem í boði eru. Mikilvægt sé að vanda valið vel. „Það er ofgnótt af vítamínum á Íslandi og megnið af því er drasl. Það eru ekki margar verksmiðjur í heiminum sem framleiða góð fæðubótarefni.“ Það séu þó til þeim mun fleiri verksmiðjur sem kunni þá list að pakka framleiðslunni í fallegar umbúðir. „Það er vert að vara við þessu. Það er allt í lagi að taka steinefni en pössum okkur á að vera ekki að dúndra þessu í okkur allan daginn. Ég er ekki á móti fæðubótarefnum, en stillum þetta af.“
Fæðubótarefni Heilsa Bítið Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fleiri fréttir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Sjá meira